Web - Amazon

We provide Linux to the World

ON AMAZON:


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Kanada - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Kanada

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Canada
Fáni Kanada Skjaldarmerki Kanada
(Fáni Kanada) (Skjaldarmerki Kanada)
Kjörorð: A Mari Usque Ad Mare
(Latína: Frá hafi til hafs)
Þjóðsöngur: O Canada
Kort sem sýnir staðsetningu Kanada
Höfuðborg Ottawa
Opinbert tungumál enska og franska
Stjórnarfar Þingbundin konungsstjórn
Elísabet 2.
Michaëlle Jean
Stephen Harper
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
2. sæti
9.984.670 km²
8,62
Mannfjöldi
 • Samtals (2005)
 • Þéttleiki byggðar
35. sæti
32.805.041
4/km²
VLF (KMJ)
 • Samtals
 • á mann
áætl. 2005
1.089.000 millj. dala (8. sæti)
32.614 dalir (16. sæti)
Gjaldmiðill Kanadískur dalur
Tímabelti UTC −3,5 til −8
Þjóðarlén .ca
Landsnúmer 1

Kanada er annað stærsta landið í heiminum að flatarmáli, og þekur nyrðri hluta Norður-Ameríku. Kanada er ríkjasamband, sem samanstendur af tíu fylkjum og þremur sjálfstjórnarsvæðum. Kanada er lýðræðisríki en í konungssambandi við Bretland. Það var upprunalega myndað með Bresku Norður-Ameríku lögunum frá 1867 og kallað „sjálfstjórnarsvæðið Kanada“. Opinber tungumál eru enska og franska.

Efnisyfirlit

[breyta] Yfirlit

Höfuðborg Kanada er Ottawa, þar situr löggjafarþing landsins og þar búa líka yfirlandstjóri Kanada, sem er fulltrúi Elísabetar Bretadrottningar, formlegs þjóðarleiðtoga Kanada, og forsætisráðherrann.

Vegna þess að ríkið er upprunalega sameining breskra og franskra nýlendna er Kanada meðlimur í bæði Breska samveldinu og „La Francophonie“. Kanada er formlega tvítyngt ríki: Franska er töluð mestmegnis í austurfylkjunum Quebec, New Brunswick, austur-Ontario og í ákveðnum samfélögum Atlantshafsmegin og í vestri. Enska er töluð alls staðar annars staðar nema í smærri samfélögum og meðal innfæddra.

Fjórir stærstu stjórnmálaflokkarnir halda flestum, ef ekki öllum, sætum á þinginu.

Kanada er tæknilega þróað og iðnvætt ríki, sem er sjálfbært í orkuframleiðslu, þökk sé stórum náttúrulegum birgðum af jarðefnaeldsneyti, ásamt kjarnorku- og vatnsorkuframleiðslu. Efnahagur þess hefur lengi treyst sérstaklega á náttúrulegar auðlindir og viðskipti, þá sérstaklega við Bandaríkin. Þrátt fyrir að fjölbreytni hafi yfirleitt aukist mikið í kanadísku efnahagslífi þá eru enn þá mörg héruð, sem treysta á vinnslu og sölu náttúrulegra auðlinda.

[breyta] Nafn

Nafnið „Canada“ er talið hafa átt uppruna sinn úr Huron-Iroquoi orðinu kanata, sem þýðir „þorp“, „byggð“ eða „kofaþyrping“. Það vitnar til Stadacona, sem var byggð, þar sem nú stendur borgin Quebec. Kort, sem gerð voru af evrópskum landnámsmönnum, sýna að nafnið Kanadaá var gefið ánni, sem rennur í gegnum Ottawa og Saint Lawrence ánni, sem rennur sunnan við Montreal. Líkleg tilgáta bendir til þess, að áin hafi fengið nafn sitt eftir litlu þorpi, og aðliggjandi landi, sem stóð á bakka hennar.

[breyta] Söguágrip

Vinland
Vinland

Upphaflegir íbúar Kanada (þekktir í Kanada sem Fyrstu Þjóðirnar) hafa búið þar í að minnsta kosti 10.000 ár. Fyrsta heimsókn Evrópubúa varð í kringum árið 1000 eftir Krist, þegar Víkingar námu þar land, kölluðu Vínland og settu á fót byggð í stuttan tíma. Frakkar námu svo land við Saint Lawrence ánna og Kanada Atlantshafsmegin á 16. og 17. öld.

Frakkland afsalaði því nær öllu Nýja Frakklandi, eins og þeir nefndu það, til Bretlands, ásamt Akadíu og svæðinu þar sem nú liggja Quebec og Ontario, með Parísarsáttmálanum 1763. Bretland kom á fót nýlendunum Nova Scotia, Lægra Kanada og Efra Kanada. Nýlendur, sem nú svara til fylkjanna Nova Scotia, New Brunswick og Prince Edward Island voru settar á laggirnar fljótlega eftir það. Efra og Lægra Kanada voru síðan sameinuð til að mynda Kanadafylkið. Bretonhöfði var seinna sameinaður Nova Scotia.

Fyrir og eftir Bandaríska frelsisstríðið yfirgáfu margir þeir sem hliðhollir voru Bretum Nýlendurnar Þrettán til að setjast að í Kanada. Aðrir landnemar á þessum uppvaxtartíma komu frá Evrópu, þá sérstaklega frá Bretlandseyjum.

1. júlí 1867 fengu þrjár nýlendur - Kanadafylki, Nova Scotia og New Brunswick - eigin stjórnarskrá frá Bretum („Bresku Norður-Ameríku“ lögin) og þar með var myndað „sjálfstjórnarsvæðið Kanada“. Það samanstóð af fylkjunum Nova Scotia, New Brunswick, Quebec (fyrrum Austur-Kanada) og Ontario (fyrrum Vestur-Kanada). Heitið Ríkjabandalagið á við um þessi sameiningarlög frá 1867.

Aðrar breskar nýlendur og sjálfstjórnarsvæði gengu fljótlega eftir þetta í bandalag við Kanada: eftir 1880 innihélt Kanada það svæði, sem að það nær yfir í dag fyrir utan Nýfundnaland og Labrador, sem sameinaðist 1949. Westminister lögin frá 1931 gáfu Kanada opinberlega fulla sjálfstjórn. Stjórnarskrá Kanada var svo formlega stofnað árið 1982.

Á seinni helmingi 20. aldar hafa tvær alsherjaratkvæðagreiðslur verið haldnar í frönskumælandi Quebec til að lýsa yfir sjálfstæði („sjálfstjórn“) frá Kanada, árin 1980 og 1995. Í fyrri atkvæðagreiðslunni kusu 60% á móti sjálfstæði; en í þeirri seinni voru eingöngu 50.6% á móti. Margir telja að þriðja slík atkvæðagreiðsla sé væntanleg.

[breyta] Landafræði

Hin mikilfenglegu Kanadísku klettafjöll
Hin mikilfenglegu Kanadísku klettafjöll

Kanada nær yfir nyrðri helming Norður-Ameríku. Það á landamæri að Bandaríkjunum í suðri og í norð-vestri (Alaska). Landið nær frá Atlantshafi og Davissundi í austri til Kyrrahafs í vestri; af því er kjörorð landsins dregið. Í norðri eru svo Beuforthaf og Norðuríshaf. Síðan 1925 hefur Kanada átt tilkall til hluta norðurheimskautasvæðisins á milli 60. og 141. lengdargráðu vestur ([1]); það er að segja, að tilkall Kanada til landsvæðis nær alveg upp að Norðurpól. Nyrðsta byggð Kanada (og heimsins) er Kanadíska herstöðin Alert á norðurenda Ellesmereeyjar — breiddargráða 82.5°N — aðeins 834 kílómetra frá Norðurpólnum.

Kanada er næststærsta land í heiminum eftir landsvæði, á eftir Rússlandi og þekur um 41% af Norður-Amerísku heimsálfunni. Hins vegar liggur stór hluti Kanada á norðurheimskautasvæðinu, og hefur það því aðeins fjórða stærsta nothæft land á eftir Rússlandi, Kína og Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þéttleiki byggðar er aðeins um 3,2 manns á ferkílómetra, sem er mjög lágt samanborið við önnur lönd. Til samanburðar má þó geta að þéttleiki byggðar á Íslandi er tæplega 3 á ferkílómetra. Áttatíu prósent íbúa Kanada búa innan við 200 kílómetra frá landamærum Bandaríkjanna, þar sem að loftslagið er mest temprað og land er ræktanlegt.

Þéttbýlasta svæði landsins er dalurinn sem afmarkast af Stóru vötnunum og Saint Lawrence ánni að austan. Fyrir norðan þetta svæði er hinn breiði Kanadíski skjöldur, en hann er klettalag, sem er jökulsorfið eftir síðustu ísöld. Þetta klettalag er nú þakið þunnu, steinefnaríku jarðvegslagi, og er skorið af vötnum og ám, en yfir 60% af stöðuvötnum heims eru staðsett í Kanada. Kanadíski skjöldurinn umlykur Hudsonflóa.

Kanadíski skjöldurinn nær að strönd Atlantshafs við Labrador, meginlandshluta fylkisins Nýfundnaland og Labrador. Eyjan Nýfundnaland, austasti hluti Norður-Ameríku, er við mynni Saint Lawrenceflóa, sem er heimsins stærsti árós, og fyrsta landsvæðið, sem numið var af evrópubúum. Atlantshafsfylkin skaga austur á við frá syðri strönd Saint Lawrenceflóa, á milli flóans í norðri og Atlantshafs í suðri. Fylkin New Brunswick og Nova Scotia eru aðskilin af Fundyflóa, sem gengur úr Atlantshafinu til norðausturs. Þar eru mestu sjávarfallabreytingar (munur flóðs og fjöru) í heiminum. Minnsta fylki Kanada er Prince Edward Island.

Vestur við Ontario, eru hinar breiðu og flötu Kanadísku sléttur, sem ná yfir fylkin Manitoba, Saskatchewan og Alberta, og ná allt að Klettafjöllunum, en þau liggja á milli fylkjanna Alberta og Bresku Kolumbíu.

Gróður í norðurhluta Kanada dvínar eftir því sem norðar dregur frá barrskógum yfir í freðmýri og svo loksins í norðurskautsgróðurleysið (túndru) nyrst. Norðan við meginland Kanada er geysilegur eyjaklasa, sem að hefur að geyma nokkarar af stærstu eyjum jarðar.

Kanada er fræg fyrir kalt loftslag. Vetur getur verið óvæginn víða í landinu, með hættu á hríðarbyljum og hitastigi niður undir -50°C í nyrstu hlutum þess. Strandfylkið Breska Kólumbia er undantekning frá þessu og nýtur mun mildari vetra en restin af landinu, vegna nálægðar við sjó.

Í þéttbygðustu svæðunum spanna sumrin frá mildu yfir í frekar hátt hitastig, þar sem að hiti í Montreal getur náð vel yfir 30°C og í Iqualuit í Nunavut allt upp í 15°C. Í Vancouver er hitastig yfirleitt á milli 0 til 25°C allt árið um kring, en aftur á móti á sléttunum fer það allt niður í -40°C á veturna og upp í 35°C á sumrin.

Á öðrum tungumálum
Static Wikipedia 2008 (March - no images)

aa - ab - als - am - an - ang - ar - arc - as - bar - bat_smg - bi - bug - bxr - cho - co - cr - csb - cv - cy - eo - es - et - eu - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - frp - fur - fy - ga - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - jbo - jv - ka - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - ms - mt - mus - my - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nn - -

Static Wikipedia 2007 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -
https://www.classicistranieri.it - https://www.ebooksgratis.com - https://www.gutenbergaustralia.com - https://www.englishwikipedia.com - https://www.wikipediazim.com - https://www.wikisourcezim.com - https://www.projectgutenberg.net - https://www.projectgutenberg.es - https://www.radioascolto.com - https://www.debitoformativo.it - https://www.wikipediaforschools.org - https://www.projectgutenbergzim.com