Kenýa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|||||
Kjörorð: Harambee (svahílí: vinnum saman) | |||||
Opinbert tungumál | enska og svahílí | ||||
Höfuðborg | Naíróbí | ||||
Forseti | Mwai Kibaki | ||||
Flatarmál - Samtals - % vatn |
46. sæti 582.646 km² 2.3 % |
||||
Mannfjöldi - Samtals (2007) - Þéttleiki byggðar |
33. sæti 36.913.721 63,3/km² |
||||
Sjálfstæði - Dagur: |
Frá Bretlandi 12. desember, 1963 |
||||
VLF - Samtals - á mann |
áætl. 2005 48.33 milij. dala (87. sæti) 1 445 dalir (175. sæti) |
||||
VÞL | 0,521 (148. sæti) | ||||
Gjaldmiðill | kenýaskildingur | ||||
Tímabelti | UTC+3 | ||||
Þjóðsöngur | Ee Mungu Nguvu Yetu | ||||
Rótarlén | .ke | ||||
Alþjóðlegur símakóði | 254 |
Kenýa er land í Austur-Afríku með landamæri að Eþíópíu í norðri, Sómalíu í austri, Tansaníu í suðri, Úganda í vestri og Súdan í norðvestri og strönd við Indlandshaf. Höfuðborg landsins er Naíróbí.
[breyta] Stjórnarsvæði
Svæði | Flatarmál | Íbúar | Höfuðborg | ||
---|---|---|---|---|---|
1. | Central | 13.191 km² | 4.304.300 | Nyeri | |
2. | Coast | 83.603 km² | 2.583.600 | Mombasa | |
3. | Eastern | 159.891 km² | 5.380.200 | Embu | |
4. | Nairobi | 684 km² | 2.940.911 | Nairobi | |
5. | North Eastern | 126.902 km² | 962.143 | Garissa | |
6. | Nyanza | 16.162 km² | 4.889.700 | Kisumu | |
7. | Rift Valley | 173.854 km² | 7.630.300 | Nakuru | |
8. | Western | 8.361 km² | 3.569.400 | Kakamega |
[breyta] Landafræði
Kenýa Liggur við Austur strönd afríku. Miðbaugur liggur í gegnum norður hluta þess. Landið er að mikklu leyti hálent en lálent við strendur. Í vesturdalnum eru mörg stór og afar djúp stöðuvötn þ.á m. Tanganyikavatn sem er annað dýpsa vatn í heimi. Nyrst við Landamæri Eþíópíu er mjög stórt vatn sem nefnist Turkanavatn. Í eystri sigdalinum eru grunn og afrennslulaus vötn. Ástæðan fyrir að vötnin þar eru grynnri er sú að þykk lög af eldfjallaösku hafa sest í austurdalnum. Í Kenýu eru líka með stærri fjöllum í heimi, Kilimanjaro og Kenýufjall, bæði eldfjöll. Kenýufjall er útbrunnið en Kilimanjaro er enn þá virkt.
Kenýa er 580.000 ferkílómetrar að stærð og íbúadreif er 48 íbúar á ferkílómeter. Höfuðborgin er Nairobi, hún er í 1800 metra hæð. Í Kenýu velur folk sér bústað eftir gæðum náttúrunnar. Flestir hinna 28 milljón íbúa í Kenýu búa í suðurhluta landsins í grennd við höfuðborgina Nairobi og við landamæri Úganda hjá Viktoríuvatni. Þar eru góðar jarðir og nægileg úrkoma til að stunda akuryrkju. Það búa líka margir við strandlengjuna. Aðeins örfá prósent íbúanna í Kenýu borga nokkurn skatt. Allir hinir eru smábændur sem stunda sjáfsþurfarbúskap eða hafa ofan af fyrir sér innan á óopinbera geirans í borgunum. Kenía er þróunarland og lífskjör þar eru afar ólík því sem gerist á Íslandi. Þegar Kenýubúar fara til vinnu sinnar í borgunum koma þeir ekki á bíl, hjóli eða vespu! Heldur fótgangandi. Sundum eru samt teknar rútur eða strætisvagnar en flestir ganga saman í stórum hópum inn í miðborgina og svo aftur heim um kvöldið. 99 prósent af Keníubúum eru af mismunandi þjóðarbrotum blökkumanna. Í landinu búa 80.000 arabar, 50.000 hvítir menn og 40.000 manns af asíuættum. Næstum því hvert þjóðarbrot hefur sitt eigið tungumál en til að einfalda þann vanda hefur Svahílí verið gert að ríkismáli. Svahílí er bantúmál sem blandast hefur við smá arabísku og ensku. Landamæri Tansaníu og Kenýu voru upphaflega alveg bein. Fyrir hundrað arum fengu landamærin þá lögun sem þau eru núna. Kenýa var þá ensk nýlenda en Tansanía þýsk. Viktoría Englandsdrottning breytti landamærunum þegar hún gaf þýska keisaranum, frænda sínum Kilimanjaro í afmælisgjöf. Kenía varð sjálfstætt ríki 1963.
Mjög margir starfa við landbúnað í Kenýu. Landbúnaðinum er skipt í þrennt: smábú, stórbú og hefðbundin búfjárrækt. Langflestir vinna á smábúum. Smábændur rækta mest maís, sem er uppistaða fæðu venjulegs Kenýu búa. Smábændur rækta líka baunir, maniok, durra, hirsi og kál. Þeir halda líka flestir kýr, kindur og geitur. Stórbúin eru hins vegar otfast í eigu hlutafélaga eða einstakra ríkra keníuúa. Afurðirnar þaðan eru ætlaðar til sölu. Þá er um að ræða: kaffi, te og ananas. Þeir sem lifa á hinni hefðbundnu búffjárrækt eru þjóðarbrotin sem stunda að mestu sjálfþurftabúskap. Í Kenýu eru um 50 mismunandi þjóðir. Fyrsti forseti landsins var Jomo Kenyatta. Hann var af fjölmennustu þjóðinni kíkújú. Á meðan hann ríkti naut sú þjóð ýmissa forréttinda. Af því hlutust pólistískar óeirðir í landinu. Áður en Kenía varð sjálfstætt ríki þá ríkti mikið ósætti í samfélaginu en nú eiga þau að starfa saman í einu ríki.
Nú á dögum er Kenýa með friðsamlegari löndum í Afríku þrátt fyrir erfiðleika. Núna í Janúar voru t.d. einn mesti þurrkur Kenýu í áraraðir í Norður hluta landsins, þar sem folk lifir á hirðingjabúskap. Það var mjög erfitt því mestur búfénaðurinn drapst. Börnin voru líka vannærð og ástandið ekki gott.
Norður-Afríka: Alsír · Egyptaland (að hluta) · Líbýa · Marokkó · Súdan · Túnis · Vestur-Sahara
Vestur-Afríka: Benín · Búrkína Fasó · Fílabeinsströndin · Gambía · Gana · Gínea · Gínea-Bissá · Grænhöfðaeyjar · Líbería · Malí · Máritanía · Níger · Nígería · Senegal · Síerra Leóne · Tógó
Mið-Afríka: Angóla · Austur-Kongó · Gabon · Kamerún · Mið-Afríkulýðveldið · Miðbaugs-Gínea · Saó Tóme og Prinsípe · Tsjad · Vestur-Kongó
Austur-Afríka: Búrúndí · Djíbútí · Erítrea · Eþíópía · Kenýa · Kómoreyjar · Madagaskar · Malaví · Máritíus · Mósambík · Rúanda · Sambía · Seychelleseyjar · Simbabve · Sómalía · Sómalíland · Tansanía · Úganda
Sunnanverð Afríka: Botsvana · Lesótó · Namibía · Suður-Afríka · Svasíland
Yfirráðasvæði: Kanaríeyjar · Ceuta og Melilla · Madeiraeyjar · Mayotte · Réunion · Sankti Helena og yfirráðasvæði