Naíróbí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Naíróbí er höfuðborg Kenýa og ein af stærstu borgum álfunnar með um þrjár milljónir íbúa. Nafnið kemur úr máli masaja, Enkarenairobi, sem merkir „köld vötn“.
Borgin var stofnuð 1899 sem birgðastöð fyrir Úganda-járnbrautina milli Mombasa og Úganda. 1900 kom upp faraldur í borginni og hún var brennd til grunna. Eftir það var hún endurbyggð og varð höfuðstaður Bresku Austur-Afríku og síðan höfuðborg þegar Kenýa fékk sjálfstæði árið 1963.