Web - Amazon

We provide Linux to the World

ON AMAZON:


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Beijing - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Beijing

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Forboðna borgin, heimili keisara af Ming- og Qing-ættum
Forboðna borgin, heimili keisara af Ming- og Qing-ættum

Beijing eða Peking er höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína. Á kínversku Beijing , (北京), merkir nafnið „Norður-höfuðborg“. Norður, vestur og suður af Beijing er Hebei-hérað og í suðaustri er sveitarfélagið Tianjin.

Beijing er næstfjölmennasta borg landsins, næst á eftir Sjanghæ. Beijing er miðpunktur mennta og menningar auk þess sem stjórnvöld stýra landinu þaðan. Sjanghæ og Hong Kong eru hins vegar meira áberandi hvað varðar efnahagsleg umsvif.

Efnisyfirlit

[breyta] Nafn

Frá 1928[1]  til 1949, var borgin kölluð Beiping (北平), sem þýðir „Norðlægur friður“. Nafninu var breytt þegar Kuomingtang setti á fót höfuðborg í Nanking (南京) („suður-höfuðborg“).

Við stofnun Alþýðulýðveldisins Kína endurreisti Kommúnistaflokkur Kína Beijing sem höfuðborg. Kaldara loftslag er í Beijing, heldur en í Aþenu.

[breyta] Saga

Leifar borgarmúra umhverfis Beijing (ágúst 2004)
Leifar borgarmúra umhverfis Beijing (ágúst 2004)

Borgir stóðu hvar nú er Bejing á fyrsta árþúsundi fyrir Krist og höfuðborg Yan-ríkisins (燕), var stofnuð við Ji (T: 薊 / S: 蓟), nærri því hvar Beijing stendur í dag.

Á tímum Sui- og Tang-ættanna, voru einungis litlir bæir þar sem Bejing er nú. Fjöldi fornra skálda sótti staðinn heim og syrgði fornar borgir.

Árið 936, afsalaði seinni Jin-ættin (936-947) sér stórum hluta norður-Kína á sitt vald, þar með talinn þann stað þar sem Beijing stendur nú, til Liao-ættarinnar. Árið 938 reisti Liao-ættin borg hvar nú er Beijing og kallaði hana Nanjing („suður-höfuðborg“). Árið 1125, innlimaði Jinn-ættin Liao, og flutti höfuðborg sína árið 1153 til Beijing en kallaði hana Zhongdu (中都), eða „Mið-höfuðborgina“, suðvestur af miðborg Beijing nútímans.

Mongólar brenndu Zhongdu til grunna 1215 og byggðu sína eigin stór-höfuðborg, Dadu (大都), norður af höfuðborg Jin-ættarinnar árið 1267 og markar það upphaf Beijing. Markó Póló kallaði svæðið „Cambuluc“. Kublai Khan, sem vildi verða Keisari Kína, byggði sína borg svo norðarlega fremur en nær miðju landsins svo hún stæði nær þeim stað þar sem veldi hans var mest, í Mongólíu. Enn má sjá leifar af borgarmúr reistum af Mongólum í Beijing.

Þriðji Ming Keisarinn Zhu Di (朱棣) flutti höfuðborg Ming-ættarinnar frá Nanjing til Beijing (北京), árið 1403. Meðan Ming-ættin ríkti tók borgin á sig mikinn hluta núverandi myndar. Borgarmúrar Beijing frá Ming-tímabilinu þjónuðu sem borgarmúrar uns þeir voru rifnir og annar hringvegurinn lagður þar sem þeir stóðu áður.

[breyta] Landafræði

Gervihnattarmynd frá NASA af borginni
Gervihnattarmynd frá NASA af borginni

Beijing stendur á norðurodda hinnar svo til þríhyrndu norður-Kína sléttu sem er opin til suðurs og austurs. Fjöllin í norðri skýla borginni og landbúnaðarhéruðum frá eyðimörkinni í norðri.

Kínamúrinn, liggur að hluta í gegnum nyrðri hluta borgarinnar, varði borgina frá áhlaupum flækinga úr auðninni.

[breyta] Borgin

Bókabúð í Xidan
Bókabúð í Xidan

[breyta] Götur

Chang'an breiðgatan liggur þvert í gegnum miðja borgina frá austri til vesturs fram hjá Tian'anmen. Kínversk stjórnvöld kalla breiðgötuna oft „fyrsta stræti Kína“.

[breyta] Ferðamennska

Hið himneska hof
Hið himneska hof
Wansong-pagóðan
Wansong-pagóðan

Tian'anmen (hlið hins himneska friðar) er andlegur miðdepill Kína, hvort sem er vegna sjálfs sín eða þeirrar staðreyndar að þar er aðgangurinn að Forboðnu borginni. Þá er og á heimsminjaskrá Badaling, bútur úr Kínamúrnum, Sumar-höllin, og hið himneska hof.

[breyta] Athygliverðir staðir

  • Bútar úr Kínamúrnum við:
    • Badaling
    • Juyongguan
    • Mutianyu
    • Simatai
    • Jinshanling
    • Jiankou
  • Forboðna borgin (á heimsminjaskrá UNESCO)
  • Torg hins himneska friðar, þar sem mótmæli fóru fram 1919, 1976 og uppreisn stúdenta 1989
    • Tian'anmen (hlið hins himneska friðar)
    • Þjóðminjasafn Kína
    • Smurningur Maó
  • Sumar-höllin

[breyta] Útvarp

Þrjár útvarpstöðvar senda út efni á ensku: Hit FM á FM 88.7, Easy FMá FM 91.5, og Radio 774 á AM 774.

[breyta] Íþróttir

Árið 2008 mun Beijing hýsa sumarólympíuleikana og sumarólympíumót fatlaðra .

[breyta] Vinabæir

Beijing hefur komið á fót vinabæjarsambandi við eftirtaldar borgir:[2]

Borg Land Vinabæjarsamband frá:
Tókyó Japan 14. mars, 1979
New York-borg Bandaríkin 25. febrúar, 1980
Belgrad Serbía 14. október, 1980
Líma Perú 21. nóvember, 1983
Washington, D.C. Bandaríkin 15. maí, 1984
Madríd Spánn 16. september, 1985
Rio de Janeiro Brasilía 24. nóvember, 1986
Île-de-France France 2. júlí, 1987
Köln Þýskaland 14. september, 1987
Ankara Tyrkland 20. júní, 1990
Kaíró Egyptaland 28. október, 1990
Islamabad Pakistan 8. október, 1992
Djakarta Indónesía 8. október, 1992
Bangkok Taíland 26. maí, 1993
Buenos Aires Argentína 13. júlí, 1993
Seúl Suður-Kórea 23. október, 1993
Kíev Úkraína 13. desember, 1993
Berlín Þýskaland 5. apríl, 1994
Brussel Belgía 22. september, 1994
Hanoi Víetnam 6. október, 1994
Amsterdam Holland 29. október, 1994
Moskva Rússland 16. maí 1995
París Frakkland 23. október, 1997
Róm Ítalía 28. maí, 1998
Gauteng Suður-Afríka 6. desember, 1998
Ottawa Kanada 18. október, 1999
Canberra Ástralía 14. september, 2000
Maníla Filippseyjar 14. nóvember, 2005

[breyta] Neðanmálsgreinar

  1. 1928, Jan. 2001. The Encyclopedia of World History.. Skoðað 24. nóvember, 2007.
  2. Beijing Official Website International. Skoðað 24. nóvember, 2007.

[breyta] Tenglar

[breyta] Fyrir ferðalanga

[breyta] Myndir

Á öðrum tungumálum
Static Wikipedia 2008 (March - no images)

aa - ab - als - am - an - ang - ar - arc - as - bar - bat_smg - bi - bug - bxr - cho - co - cr - csb - cv - cy - eo - es - et - eu - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - frp - fur - fy - ga - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - jbo - jv - ka - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - ms - mt - mus - my - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nn - -

Static Wikipedia 2007 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -
https://www.classicistranieri.it - https://www.ebooksgratis.com - https://www.gutenbergaustralia.com - https://www.englishwikipedia.com - https://www.wikipediazim.com - https://www.wikisourcezim.com - https://www.projectgutenberg.net - https://www.projectgutenberg.es - https://www.radioascolto.com - https://www.debitoformativo.it - https://www.wikipediaforschools.org - https://www.projectgutenbergzim.com