23. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sep – Október – Nóv | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2007 Allir dagar |
23. október er 296. dagur ársins (297. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 69 dagar eru eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 42 f.Kr. - Önnur orrustan við Filippí: Her Brútusar var sigraður af Antóníusi og Octavíanusi og hann framdi sjálfsmorð skömmu síðar.
- 1642 - Þrjátíu ára stríðið: Sænskur her undir stjórn Lennart Torstensons gjörsigraði keisaraherinn í orrustu við Breitenfeld.
- 1938 - Samband íslenskra berklasjúklinga, SÍBS, var stofnað. Það rekur meðal annars Reykjalund og Múlalund.
- 1955 - Við verkamannabústaðina við Hringbraut í Reykjavík var reist stytta af Héðni Valdimarssyni.
- 1956 - Uppreisn í Ungverjalandi hófst með mótmælum námsmanna í tækniháskólanum í Búdapest.
- 1958 - Bandalag háskólamanna, BHM, var stofnað.
- 1963 - Í Vestmannaeyjum mældist 10 mínútna meðalvindhraði 200 km/klst. Þetta var vindhraðamet á Íslandi og var jafnað 3. febrúar 1991 og einnig í Vestmannaeyjum.
- 1976 - Alexandersflugvöllur var tekinn í notkun á Sauðárkróki. Hann er nefndur eftir prófessor Alexander Jóhannessyni, sem var frumkvöðull í flugmálum. Þar var þá lengsta flugbraut á Íslandi utan Keflavíkurflugvallar.
- 1988 - Íslendingar unnu 11 verðlaun á heimsleikum fatlaðra í Seúl í Suður-Kóreu 15. til 23. október. Þar af voru tvenn gullverðlaun, sem Haukur Gunnarsson og Lilja M. Snorradóttir hlutu.
- 2002 - Numið var úr gildi sérákvæði í stjórnarskrá Ítalíu sem kvað á um að afkomendum Úmbertós 2., síðasta konungs Ítalíu, í beinan karllegg væri bannað að stíga fæti á ítalska jörð.
[breyta] Fædd
- 1831 - Basil Lanneau Gildersleeve, bandarískur fornfræðingur (d. 1924).
- 1959 - Alfred Matthew Yankovic, ("Weird Al" Yankovic).
- 1945 - Kim Larsen
[breyta] Dáin
- 1157 - Sveinn Eiríksson, Danakonungur.
- 1941 - Helga Steinvör Baldvinsdóttir eða Undína, vestur-íslenskt ljóðskáld (f. 1858).
[breyta] Hátíðisdagar
- Alþjóðlegi móldagurinn
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |