3. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sep – Október – Nóv | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2007 Allir dagar |
3. október er 276. dagur ársins (277. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 89 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1542 - Gissur Einarsson var vígður biskup í Skálholti, tveimur árum eftir að hann tók við biskupsráðum, en ekki mátti vígja hann fyrr þar sem hann mun ekki hafa verið orðinn 30 ára. Hann var fyrsti íslenski biskupinn í lútherskum sið.
- 1903 - Konungur Danaveldis samþykkti ákvörðun danska þingsins um heimastjórn á Íslandi. Skjaldarmerki Íslands var með konungsúrskurði ákveðið að vera skyldi „hvítur íslenskur fálki á bláum grunni, er situr og snýr sér til vinstri“.
- 1932 - Írak fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1973 - Bresk herskip yfirgáfu 50 sjómílna fiskveiðilögsögu Íslands og var samið við Breta um miðjan október. Samningarnir voru samþykktir á Alþingi þann 13. nóvember.
- 1990 - Endursameining Þýskalands: Þýska alþýðulýðveldið var lagt niður og sameinað Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Dagurinn hefur síðan verið þjóðhátíðardagur Þjóðverja.
- 1996 - Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Djöflaeyjan, var frumsýnd.
[breyta] Fædd
- 1853 - Stephan G. Stephansson, skáld (d. 1927).
- 1912 - Halldór H. Jónsson, íslenskur arkitekt (d. 1992).
- 1919 - James M. Buchanan, hagfræðingur.
- 1949 - Lindsey Buckingham, Bandarískur tónlistarmaður (Fleetwood Mac)
- 1950 - Sigmar B. Hauksson, matgæðingur.
- 1950 - Óskar Árni Óskarsson, rithöfundur.
- 1953 - Tolli, listmálari.
- 1962 - Tommy Lee, Bandarískur tónlistarmaður (Mötley Crüe)
- 1964 - Clive Owen, Breskur leikari
- 1969 - Gwen Stefani, Bandarísk söngkona (No Doubt)
- 1971 - Kevin Richardson, Bandarískur söngvari (Backstreet Boys)
- 1977 - Jake Shears, söngvari (Scissor Sisters)
[breyta] Dáin
- 42 f.Kr. - Gaius Cassíus Longínus, einn af morðingjum Caesars (f. fyrir 85 f.Kr.).
- 1226 - Frans frá Assisí, ítalskur predikari (f. 1182).
- 2004 - Janet Leigh, bandarísk leikkona (f. 1927).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |