Frans frá Assisí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Heilagur Frans frá Assisí (1182 – 3. október 1226) var predikari frá Assisí í Úmbríu á Ítalíu sem boðaði meinlætalíf og höfnun veraldlegra gæða. Hann stofnaði reglu heilags Frans með leyfi Innósentíusar 3. páfa árið 1209. Munkar af þessari reglu voru nefndir „smábræður“ eða „betlimunkar“. 1911 stofnaði hann reglu Klörusystra ásamt heilagri Klöru frá Assisí sem var meðal fylgismanna hans. 1223 fékk hann sína fyrstu stigmötu (sem er fyrsta skráða tilvik um það fyrirbæri).