18. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sep – Október – Nóv | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2007 Allir dagar |
18. október er 291. dagur ársins (292. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 74 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1009 - Grafarkirkjan í Jerúsalem var eyðilögð af Al-Hakim bi-Amr Allah kalífa.
- 1016 - Játmundur járnsíða laut í lægra haldi fyrir her Knúts mikla í orrustunni við Ashingdon.
- 1618 - Sænska ríkisskjalasafnið var stofnað með kansellískipun Axels Oxenstierna.
- 1906 - Stórbruni á Akureyri: Sjö hús brunnu og um áttatíu manns misstu heimili sín. „Mesti húsbruni á Íslandi,“ sagði blaðið Norðurland.
- 1913 - Á Seyðisfirði var vígð rafveita, sem var ein sú fyrsta á Íslandi, sem náði til heils bæjarfélags og var af því tilefni haldin ljósahátíð þegar fyrstu rafljósin voru kveikt.
- 1922 - BBC var stofnuð.
- 1968 - Umdæmi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi var gert að sérstöku biskupsdæmi.
- 1980 - Sjötta lota Kröfluelda hófst og stóð í fimm daga og var þetta þriðja lotan á sama árinu.
- 2006 - Microsoft gaf út Windows Internet Explorer 7.
[breyta] Fædd
- 1405 - Píus 3. páfi (d. 1464).
- 1836 - Magnús Stephensen, síðasti landshöfðingi Íslands (d. 1917).
- 1859 - Henri Bergson, franskur heimspekingur (d. 1941).
- 1943 - Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar.
- 1873 - Ivanoe Bonomi, ítalskur stjórnmálamaður (d. 1951).
- 1987 - Zac Efron, Bandarískur söng- og leikari.
[breyta] Dáin
- 1216 - Jóhann landlausi, Englandskonungur (f. 1166).
- 1851 - Brynjólfur Pétursson, lögfræðingur og einn Fjölnismanna (f. 1810).
- 1871 - Charles Babbage, enskur stærðfræðingur (f. 1791).
- 1911 - Alfred Binet, franskur sálfræðingur (f. 1857).
- 1931 - Thomas Alva Edison, bandarískur uppfinningamaður (f. 1847).
- 1954 - Einar Jónsson, íslenskur myndhöggvari (f. 1874).
- 1980 - Pétur Hoffmann Salómonsson, íslenskur sjómaður (f. 1897).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |