Jerúsalem
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jerúsalem (eða Jórsalir eða Jórsalaborg) (31°46′N 35°14′A) (hebreska: יְרוּשָׁלַיִם Yerushalayim; arabíska: القُدس al-Quds) er forn borg fyrir botni Miðjarðarhafs og lykilborg í sögu gyðingsdóms, kristinna og múslima. Bæði gyðingar og palestínumenn gera tilkall til borgarinnar sem höfuðborgar ríkis síns (palestínumenn til framtíðarríkis). Hún er nú öll undir yfirráðum Ísraela.
Íbúafjöldi borgarinnar er um 724.000 (2006).