Gyðingdómur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gyðingdómur eru trúarbrögð Gyðinga (sem er þó hugtak sem nær yfir meira en einungis fylgjendur Gyðingdóms). Þau eru eingyðistrúarbrögð af Abrahamískum stofni. Bæði kristni og íslam eiga rætur sínar að rekja til Gyðingdóms. Gyðingdómur er eitt elsta dæmið í sögunni um eingyðistrú og einnig eitt af elstu lifandi trúarbrögðum heims með yfir 4000 ára sögu.
Síðustu tvöþúsund árin hefur Gyðingdómur ekki haft neina heildarstjórn eða sameiginlegar trúarreglur. Þrátt fyrir þetta hefa allar mismunandi flokkanir og hefðir Gyðingdóms haft sameiginlega grundvallarsýn á meginatriði trúarinnar. Það fyrsta og mikilvægasta er trúin á einn almáttugan Guð sem skapaði alheim og heldur áfram að stjórna honum, öll tilbeiðsla annarra guða er bönnuð eins og gerð mynda af honum og að segja nafn hans upphátt. Annað er sannfæring um að Guð hafi valið Gyðinga sem sitt eigið fólk og afhjúpað lögmál sín og reglur gegnum Torah (lögmálið) og gert sáttmála við þá með boðorðunum tíu. Mikilvægur þáttur í Gyðingdómi er að stunda fræðimennsku í þessum lögmálum og túlkunum á þeim í Tanakh og öðrum trúarritum og hefðum.
[breyta] Trúarathafnir
Trúarlíf í Gyðingdómi stjórnast af sérstöku almanaki. Fyrir utan sabbat (hvíludaginn) og tunglkomuna er haldið upp á fjölda hátíða, páska, Sukkot og Jom Kippur svo nokkrar séu nefndar. Miðstöð trúarathafna er sýnagógan en guðsþjónustu er hægt að halda hvar sem er, ekki síst í heimahúsum. Hvar sem tíu Gyðingar koma saman er hægt að halda svo kallað minjan sem er fullgild guðsþjónusta.
Allt lífið stjórnast af trúarlegum reglum með rætur í Tanakh og ritsöfnum sem Mishna og Talmúd. Drengir eru venjulega umskornir (mila) á áttunda degi og er þá gefið nafn, stúlkum er venjulega gefið nafi í sýnagógunni. Á þrettánda ári verður drengur bar mitzvah og er eftir það skuldbundinn að fylgja öllum trúarreglum, stúlkan verður bat mitzvah á tólfta ári.
Margir Gyðingar fylgja strangt matarreglum sem nefndar eru kosher (að hvorki snæða svín né skeldýr til dæmis, eða blanda blóði og mjólkurmat) og öðrum trúarlegum hreinlætisreglum.
[breyta] Guðþjónustuhús
Bæna- og guðþjónustuhús í Gyðingdómi er kallað sýnagóga.
[breyta] Zíonismi
Stjórnmálastefnan zíonismi hefur djúpar rætur í gyðingdómi og grundvallast á trúnni á Fyrirheitna landinu, sem guð gaf afkomendum Abrahams, skv. Hebresku bibíunni.