Stjórnmál
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stjórnmál (oft kölluð pólitík) eru ferlið og aðferðin við að taka ákvarðanir fyrir hópa fólks. Algengast er að tala um stjórnmál í sambandi við ákvarðanatöku fyrir ríki og sveitarfélög, en hugtakið getur einnig átt við um stjórnun fyrirtækja, menntastofnana og trúarreglna. Stjórnmálamenn eru oftast kosnir til að fara tímabundið með þau völd, sem felast í stjórnmálum.