15. janúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Des – Janúar – Feb | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
2008 Allir dagar |
15. janúar er 15. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 350 dagar (351 á hlaupári) eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 69- Galba var ráðinn af dögum af lífverði keisara. Otho náði völdum í Róm og lýsti sig keisara.
- 1582 - Rússland lét Eistland og Lífland af hendi við Pólsk-litháíska samveldið.
- 1609 - Eitt af fyrstu fréttablöðum heims Avisa Relation oder Zeitung, kom fyrst út í Ágsborg.
- 1759 - Þjóðminjasafn Bretlands var fyrst opnað almenningi.
- 1809 - Skipið Clarence frá Englandi kom til Hafnarfjarðar. Um borð var danskur maður, sem búið hafði í Englandi og víðar alllengi, Jørgen Jørgensen að nafni. Hann dvaldist hér í tvo mánuði. (Sjá 25. júní 1809.)
- 1885 - Wilson Bentley tók fyrstu ljósmyndina af snjókorni.
- 1892 - James Naismith gaf út reglur körfubolta.
- 1935 - Mjólkursamsalan var stofnuð.
- 1943 - Heimsins stærsta skrifstofubygging, Pentagon í Arlington, Virginíufylki, var tekin í noktun.
- 1967 - Gífurlegt hrun varð úr Innstahaus, nyrst við Steinsholtsjökul, sem er skriðjökull norður úr Eyjafjallajökli. Við hrunið rann fram mikið vatnsmagn úr jökullóninu fram á Markarfljótsaura og var það talið nema milljónum tonna. Rennsli Markarfljóts margfaldaðist um tíma vegna þessa.
- 1983 - Bandalag jafnaðarmanna á Íslandi var stofnað að frumkvæði Vilmundar Gylfasonar.
- 1994 - Hjúkrunarfélag Íslands og Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga voru sameinuð í Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
- 1994 - R-listinn ákvað sameiginlegt framboð minnihlutaflokkanna í Reykjavík.
- 2001 - Wikipedia, frjálst alfræðirit á Netinu fer í gang.
- 2007 - Byrginu var lokað.
[breyta] Fædd
- 1342 - Filippus 2. hertogi af Búrgund (d. 1404).
- 1622 - Moliére, franskt leikskáld (d. 1673).
- 1721 - Stefán Björnsson reiknimeistari (d. 1798).
- 1812 - Peter Christian Asbjørnsen, norskur rithöfundur og vísindamaður (d. 1885).
- 1864 - Loïe Fuller, bandarískur listdansari (d. 1928).
- 1918 - Gamal Abdel Nasser, forseti Egyptalands (d. 1970).
- 1929 - Martin Luther King yngri, bandarískur mannréttinda-baráttumaður, friðarverðlaunahafi Nóbels (d. 1968).
- 1976 - Þóranna Krístín Jónsdóttir, íslensk leikkona.
[breyta] Dáin
- 41 - Kalígúla, rómverskur leiðtogi (f. 12).
- 69 - Galba Rómarkeisari (f. 3 f.Kr.).
- 1886 - Hilmar Finsen, fyrsti landshöfðingi Íslands.
- 1919 - Rosa Luxemburg pólskur byltingarsinni (f. 1870 eða 1871).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |