25. janúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Des – Janúar – Feb | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
2008 Allir dagar |
25. janúar er 25. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 340 dagar (341 á hlaupári) eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 817 - Paskalis 1. varð páfi.
- 1327 - Játvarður 3. varð konungur Englands.
- 1551 - Norðlenskir vermenn á Suðurnesjum drápu Kristján skrifara og þrettán aðra menn á Kirkjubóli á Miðnesi.
- 1732 - Níu manns fórust og níu komust af úr snjóflóði, sem féll á bæinn Brimnes við Seyðisfjörð.
- 1937 - Framhaldsþátturinn Leiðarljós hóf göngu sína í útvarpi í Bandaríkjunum
- 1949 - Fyrstu ísraelsku kosningarnar. David Ben-Gurion varð forsætisráðherra Ísraels.
- 1971 - Idi Amin steypti Milton Obote af stóli og varð forseti Úganda.
- 1974 - Geirfinnsmálið: Guðmundur Einarsson hvarf sporlaust.
- 1980 - Kvikmynd Ágústs Guðmundssonar, Land og synir, var frumsýnd í Reykjavík og á Dalvík. Myndin var gerð eftir sögu Indriða G. Þorsteinssonar.
- 1990 - Skógrækt ríkisins var flutt til Egilsstaða, fyrsta ríkisstofnunin, sem var flutt út á land.
- 1990 - Stefán Hörður Grímsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin, sem veitt voru í fyrsta sinn.
- 1995 - Norðmenn sendu upp tilraunaeldflaug til að rannsaka Norðurljósin með þeim afleiðingum að varnarkerfi Rússlands fór í gang og varaði við kjarnorkuárás.
- 2004 - Opportunity (MER-B) lenti á Mars.
[breyta] Fædd
- 1615 - Govert Flinck, hollenskur listmálari (d. 1660).
- 1627 - Robert Boyle, írskur efnafræðingur (d. 1691).
- 1736 - Joseph Louis Lagrange, stærðfræðingur (d. 1813).
- 1882 - Virginia Woolf, enskur rithöfundur (d. 1941).
- 1942 - Eusébio, portúgalskur knattspyrnumaður.
- 1962 - Steinunn Ólafsdóttir, íslensk leikkona.
- 1975 - Tim Montgomery, bandarískur frjálsíþróttamaður.
- 1981 - Alicia Keys, bandarísk söngkona.
- 1984 - Robinho, brasilískur knattspyrnumaður.
[breyta] Dáin
- 1559 - Kristján 2. Danakonungur (f. 1481).
- 1952 - Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands (f. 1881)
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |