1627
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1627 (MDCXXVII í rómverskum tölum) var 27. ár 17. aldar sem hófst á föstudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en mánudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 13. apríl - Pólsk-litháíska samveldið vann sigur á Svíum í orrustunni við Hammerstein.
- 25. maí - Gústaf 2. Adolf særðist við Danziger Haupt í orrustu við Pólsk-litháíska samveldið.
- 20. júní - Tyrkjaránið í Grindavík: Sjóræningjar frá Barbaríinu hernámu fimmtán Grindvíkinga.
- 16. júlí - Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum: Sjóræningjar undir stjórn Murat Reis (Hollendingsins Jan Janzsoon) hernámu 242 Vestmannaeyinga og drápu 36.
- 22. júlí - Englendingar, undir stjórn Buckinghams hertoga, réðust á Réeyju til stuðnings húgenottum í La Rochelle.
- 27. júlí - Jarðskjálfti eyddi bæina San Severo og Torremaggiore á Ítalíu.
- September - Umsátrið um La Rochelle hófst.
[breyta] Ódagsettir atburðir
- Keisaraherinn undir stjórn Albrechts von Wallenstein réðist inn í Jótland, rændi þar og brenndi allt sem fyrir varð.
- Hollenskt skip sá suðurströnd Ástralíu í fyrsta skipti.
- Síðustu úruxarnir voru drepnir af veiðiþjófum í Póllandi.
- Fyrstu ensku landnemarnir settust að á Barbados.
[breyta] Fædd
- 25. janúar - Robert Boyle, írskur efnafræðingur (d. 1696).
- 29. nóvember - John Ray, enskur líffræðingur (d. 1705).
[breyta] Dáin
- 21. júlí - Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum (f. 1541).
- 28. október - Jahangir, mógúlkeisari (f. 1569).