Internetið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Internetið (einnig í talmáli netið, sjaldan kallað alnetið) er alþjóðlegt kerfi, sem notar IP-samskiptastaðalinn til að tengja saman tölvur um allan heim og myndar þannig undirstöðu undir ýmsar netþjónustur, eins og veraldarvefinn, tölvupóst og fleira. Internetið er upprunnið í Bandaríkjunum og er enn að mestu á forræði þeirra, t.d. við úthlutun rótarléna.