Web - Amazon

We provide Linux to the World

ON AMAZON:


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Albert Einstein - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Albert Einstein

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Albert Einstein
Albert Einstein

Albert Einstein (14. mars 1879 í Ulm í Bæjaralandi, Þýskalandi18. apríl 1955 Princeton, Bandaríkjunum) var merkasti eðlisfræðingur 20. aldar. Hann fæddist í Ulm, Þýskalandi og var af gyðingaættum. Foreldrar hans hétu Pauline og Hermann. Hann er einn af best þekktu vísindamönnum 20. aldarinnar. Hann lagði til afstæðiskenninguna — sem er líklegast hans þekktasta verk — og hafði einnig mikil áhrif á skammtafræðina, safneðlisfræðina og heimsfræðina. Hann fékk nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1921 fyrir útskýringu sína á ljóshrifum árið 1905 (Annus Mirabilis; þetta ár komu út þrjár greinar eftir hann, hver þeirra olli straumhvörfum í eðlisfræði) og verðlaun fyrir „þjónustu sína við kennilega eðlisfræði“.

Efnisyfirlit

[breyta] Líf og störf

Einstein bjó í München mesta bernsku sína, með foreldrum sínum. Hann olli þeim áhyggjum því að hann var seinþroska. Sem barn átti hann erfitt um mál, var lítt gefinn fyrir leiki og leiddist í skóla.

Ungur að árum gerðist Einstein svissneskur ríkisborgari, en í Sviss nam hann stærðfræði og eðlisfræði. Árið 1902 fær hann vinnu á einkaleyfaskrifstofu í Bern, þar sem hann vann til 1909 meðan hann lagði drög að kenningum sínum í frístundum. Árið 1911 fékk Einstein prófessorsstöðu í Prag og síðan í Zürich og Berlín. Hann starfaði innan háskóla þaðan í frá. Árið 1905 birti Einstein þrjár merkilegar ritgerðir. Ein þeirra hét „Um rafsegulfræði hluta á hreyfingu“ en í henni setti hann fram takmörkuðu afstæðiskenninguna. Takmarkaða afstæðiskenningin segir fyrir um það að massi hluta fari eftir hraða þeirra. 1916 birti Einstein almennu afstæðiskenninguna í nokkrum ritgerðum. 1919 var kenningin staðfest með frægri athugun, við sólmyrkva, á sveigju ljóss sem berst frá fjarlægri stjörnu, vegna þyngdarafls sólar. 1921 fékk Einstein Nóbelsverðlaun fyrir framlag sitt til eðlisfræðinnar. Einstein var af Gyðingaættum og hrökklaðist frá Þýskalandi nasismans til Princeton í Bandaríkjunum árið 1933. Þar bjó hann til dauðadags.

Giftist serbneskri unnustu sinni, Milevu Marić, 1903, en þau skildu 1919. Eignuðust sama þrjú börn, stúlkuna Liserl (1902- ?), sem annað hvort var gefin til ættleiðingar eða dó úr skarlatssótt, synina Hans Albert (1904-1973) og Eduard Tete (1910-1965). Hans Albert varð prófessor í verkfræði við Berkeley-háskólann, en Eduard þjáðist af geðklofa. Mileva nam stærðfræði og eðlisfræði, en þau Einstein unnu saman að rannsóknum, þó ekki séu til heimildir fyrir því að Mileva hafi með beinum hætti komið að Nóbelsverðlaunagreininni né Afstæðiskenningunni. Einstein giftist náfrænku sinni Elsu 1919, en hún átti fyrir tvær dætur, sem þau ólu upp saman.

[breyta] Afstæðiskenningin

Aðalgrein: Afstæðiskenningin

Afstæðiskenning Einsteins er yfirleitt sett fram í tvennu lagi eins og hann gerði raunar líka þegar hann birti hugmyndir sínar. Er þá talað um takmörkuðu afstæðiskenninguna annars vegar og hins vegar um almennu afstæðiskenninguna. Kjarna fyrri kenningarinnar birti Einstein í einni tímaritsgrein árið 1905 en hann lauk við að birta meginatriði almennu kenningarinnar árið 1916. Í takmörkuðu kenningunni er megináhersla lögð á ljósið og hluti sem nálgast ljóshraða en í þeirri almennu eru þyngdarkraftar líka teknir með í reikninginn og meðal annars lýst þeim áhrifum sem þeir hafa á rúmið.

[breyta] Tenglar

Wikivitnun
Wikivitnun hefur upp á að bjóða safn tilvitnana á síðunni:
Wikisource
Á Wikisource er að finna verk eftir eða um:
Commons
Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt:

[breyta] Íslenskir tenglar

Static Wikipedia 2008 (March - no images)

aa - ab - als - am - an - ang - ar - arc - as - bar - bat_smg - bi - bug - bxr - cho - co - cr - csb - cv - cy - eo - es - et - eu - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - frp - fur - fy - ga - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - jbo - jv - ka - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - ms - mt - mus - my - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nn - -

Static Wikipedia 2007 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -
https://www.classicistranieri.it - https://www.ebooksgratis.com - https://www.gutenbergaustralia.com - https://www.englishwikipedia.com - https://www.wikipediazim.com - https://www.wikisourcezim.com - https://www.projectgutenberg.net - https://www.projectgutenberg.es - https://www.radioascolto.com - https://www.debitoformativo.it - https://www.wikipediaforschools.org - https://www.projectgutenbergzim.com