See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Ósló - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Ósló

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Staðsetning fylkisins Ósló
Staðsetning fylkisins Ósló

Ósló er höfuðborg Noregs. Þar bjuggu 529.846 íbúar árið 2005. Fylkið, sveitarfélagið og bærinn heita öll Ósló. Borgin er vinabær Reykjavíkur. Borgarstjóri er Fabian Stang sem situr fyrir hægrimenn. Fylkið Ósló er það fjölmennasta í landinu og er staðsett í landshlutanum Austurland.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Samkvæmt Heimskringlu byggðist svæðið við Akersána fyrst árið 1048 og var það fyrir tilstilli Haraldar Harðráða sem þá var konungur Noregs. Frá aldamótunum 1300 allt fram á nútíð hefur borgin verið höfuðborg landsins.

Akershusvirki
Akershusvirki

Eftir borgarbrunana árin 1567 og 1624 byggði Kristján 4. borgina upp á nýtt árið 1624 og lét hana heita Kristjaníu (no: Christiania og síðar Kristiania) og hét hún það allt til ársins 1925. Við ströndina lét Kristján konungur byggja Akershusvirki sem átti að vernda borgina gegn herfylkingum sem gætu komið sjóleiðina inn Óslóarfjörðinn.

Konungshöllin
Konungshöllin

Árið 1814 varð borgin höfuðborg Noregs því þá sundraðist samstarf Norðmanna og Dana. Á 19. öldinni blómstraði borgin og margar mikilfenglegar byggingar voru reistar, s.s. Konungshöllin, Háskólinn, Þinghúsið, Þjóðleikhúsið og fleiri.

[breyta] Borgin og umhverfið

Ráðhúsið í Ósló
Ráðhúsið í Ósló

Borgin skiptist í 15 bæjarhluta; Alna, Bjerke, Frogner, Gamle Oslo, Grorud, Grünerløkka, Nordre Aker, Nordstrand, Sagene, St. Hanshaugen, Stovner, Søndre Nordstrand, Ullern, Vestre Aker og Østensjø. Hver bæjarhluti sér um hluta af þjónustuverkefnum sem borgin þarf að þjónusta íbúa með.

Í kring um Ósló eru fjöll og ásar, sá hæsti heitir Kjerkeberget og er 629 m.y.s. Á firðinu eru margar eyjar og eru ferjusamgöngur til þeirra.

Á Frogner er að finna Vigelands garðinn, en þar eru styttur eftir myndhöggvarann Gustav Vigeland. Meðal annars er þar að finna 14 metra háa styttu sem kallast Monolitten en hún sýnir gang lífsins. Styttan er skorin út úr einum granít-steini.

[breyta] Menning

Þjóðleikhúsið í Ósló
Þjóðleikhúsið í Ósló

Vetrarólympíuleikarnir 1952 voru haldnir í Ósló, en borgin er mikil íþróttaborg. Ekki þurfa borgarbúar að fara langt til að komast í íþróttaiðkun. Á veturnar er það sérstaklega vinsælt að fara á gönguskíði í skógunum í kring auk þess sem skautahlaup er iðkað á ísilögðum fótboltavöllum út um alla borg og á vötnum í skógunum.

Norwegian Wood-tónlistarhátíðin er haldin ár hvert á Frogner og margir af þekktustu tónlistarmönnum heims koma þar fram. Oslo Horse Show er einnig haldið á hverju ári, en það er stór hestasýning og -keppni sem haldin er í Oslo Spektrum-fjölnotahúsinu í miðborg Óslóar. Oslo Spektrum er ýmist notað undir tónleikahald, ísdanssýningar auk þess sem húsið hefur marga aðra möguleika í sýninga- og ráðstefnuhaldi.

[breyta] Þekkt fólk frá Ósló

  • Torbjørn Egner (1912-1990), rithöfundur
  • Carl I. Hagen, stjórnmálamaður
  • Sonja Henie (1912-1969), skautakona
  • Odd Nerdrum, listmálari
  • Jens Stoltenberg, stjórnmálamaður og forsætisráðherra
  • Kåre Willoch, stjórnmálamaður og fyrrum forsætisráðherra

[breyta] Tengt efni

[breyta] Tengill


Fylki Noregs

Akershus | Austfold | Austur-Agðir | Buskerud | Finnmörk | Heiðmörk | Hörðaland | Mæri og Raumsdalur | Norðurland | Norður-Þrændalög | Ósló | Rogaland | Sogn og Fjarðafylki | Suður-Þrændalög | Tromsfylki | Vestur-Agðir | Vestfold | Upplönd | Þelamörk

25 stærstu borgir Noregs (með íbúafjölda 2005 skv. Hagstofu Noregs)

Ósló (811,700) | Björgvin (213,600) | Stafangur (173,100) | Þrándheimur (147,100) | Fredrikstad (97,100) | Drammen (90,700) | Skien (85,100) | Kristiansand (63,800) | Tromsø (52,400) | Tønsberg (45,000) | Álasund (44,100) | Haugesund (40,300) | Sandefjord (39,600) | Moss (34,500) | Bodø (34,100) | Arendal (30,900) | Hamar (28,800) | Larvik (23,100) | Halden (22,000) | Harstad (19,400) | Lillehammer (19,100) | Molde (18,600) | Mo i Rana (17,900) | Kongsberg (17,700) | Horten (17,700)


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -