Akershus
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Akershus er fylki í suðaustur Noregi, 4.918 km² að stærð og íbúarnir eru um það bil 518.000. Akershus er næstfjölmennasta fylki Noregs á eftir Ósló. Höfuðstaðurinn í fylkinu er Ósló, sem hefur um 560.000 íbúa. Tæknilega er Ósló ekki í fylkinu Akershus, það er sér fylki. Ástæðan er sú, að Akershus deilir landamærum með Ósló, og er líka hluti af höfuðborgarsvæðinu Ósló. Stærsta borgin í fylkinu er Bærum, og hefur um 108.000 íbúa. Akershus deilir landamærum með fylkjunum Buskerud, Upplönd, Heiðmörk, Ósló og Austfold. Fylkið er í landshlutanum Austurland.
[breyta] Saga
Akershus varð amt árið 1662, ásamt Buskerud amt, þangað til árið 1685 þegar samböndin á milli Akershus og Buskerud slitnaði, með þeim afleiðingum að Buskerud varð sitt eigið amt. Árið 1919 var orðið amt breytt í fylke, sem þýðir fylki.
Nafnið á fylkinu, Akershus, er nefnt eftir virkinu Akershus, sem var byggt árið 1299 til að verja höfuðborgina Ósló, gegn sjóræningjum eða einhverjum sem girndust borgina og vildu taka yfir henni.
[breyta] Sveitarfélög
Sveitarfélögin í fylkinu eru tilsamans 22. Það fjölmennasta er Bærum.
- Ås
- Asker
- Aurskog-Høland
- Bærum
- Eidsvoll
- Enebakk
- Fet
- Frogn
- Gjerdrum
- Hurdal
- Lørenskog
- Nannestad
- Nes
- Nesodden
- Nittedal
- Oppegård
- Rælingen
- Skedsmo
- Ski
- Sørum
- Ullensaker
- Vestby
Fylki Noregs | ||||
---|---|---|---|---|
Akershus | Austfold | Austur-Agðir | Buskerud | Finnmörk | Heiðmörk | Hörðaland | Mæri og Raumsdalur | Norðurland | Norður-Þrændalög | Ósló | Rogaland | Sogn og Fjarðafylki | Suður-Þrændalög | Tromsfylki | Vestur-Agðir | Vestfold | Upplönd | Þelamörk |