Kongsberg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kongsberg | |
Upplýsingar | |
Fylki | Buskerud |
Flatarmál – Samtals |
137. sæti 753 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
38. sæti 23.315 30,96/km² |
Bæjarstjóri | Vidar Lange |
Þéttbýliskjarnar | Kongsberg |
Póstnúmer | 3601-19 |
Opinber vefsíða |
Kongsberg er sveitarfélag og borg í Buskerud-fylki í Noregi. Íbúafjöldi 1. janúar 2006 var 23.315 og flatarmál sveitarfélagsins er 792 km². Kongsberg er syðsta sveitarfélag fylksins og liggur að Þelamörku og Vestfold. Nágrannasveitarfélög þess eru Flesberg, Øvre Eiker, Hof, Skien, Siljan, Lardal, Notodden og Sauherad.
Í gegnum bæinn rennur áin Numedalslågen.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Kongsberg var stofnað af Kristjáni IV árið 1624, en árið áður hafði fundist silfur á staðnum. Konungur kallaði til þýska námumenn og voru námur grafnar inn í bergið á svæðinu. Mikið silfur var unnið allt fram til ársins 1805, en þá var námunum lokað. Vinna í þeim hófst síðan aftur árið 1816 en lokað að alvöru árið 1957.
Í mannfjöldatalningu árið 1764 var Kongsberg annar stærsti bær Noregs, á eftir Björgvin sem þá var stærsti bærinn. Kongsberg fékk kaupstaðarréttindi árið 1802.
[breyta] Þekkt fólk frá Kongsberg
- Morten Harket, tónlistarmaður
- Stine Brun Kjeldaas, snjóbrettakona
[breyta] Menning
Í Kongsberg er einkar gott skíðasvæði og Kongsberg Jazz Festival hefur verin haldin á hverju ári síðan 1964.
[breyta] Vinabæir
Vinabæir Kongsberg eru:
- Køge, Danmörku
- Kristianstad, Svíþjóð
- Esbo, Finnlandi
- Skagafjörður, Íslandi
- Gouda, Hollandi
- Redwing í Minnesóta, BNA
- Chitose, Japan
[breyta] Tengill
25 stærstu borgir Noregs (með íbúafjölda 2005 skv. Hagstofu Noregs) |
---|
Ósló (811,700) | Björgvin (213,600) | Stafangur (173,100) | Þrándheimur (147,100) | Fredrikstad (97,100) | Drammen (90,700) | Skien (85,100) | Kristiansand (63,800) | Tromsø (52,400) | Tønsberg (45,000) | Álasund (44,100) | Haugesund (40,300) | Sandefjord (39,600) | Moss (34,500) | Bodø (34,100) | Arendal (30,900) | Hamar (28,800) | Larvik (23,100) | Halden (22,000) | Harstad (19,400) | Lillehammer (19,100) | Molde (18,600) | Mo i Rana (17,900) | Kongsberg (17,700) | Horten (17,700) |