Menntun
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Menntun er hugtak sem oftast er notað um kerfisbundið nám þar sem fólk lærir hjá viðurkenndum fagaðilum, t.d. kennurum. Til eru ótal kennsluaðferðir sem nýta mismunandi tækni til kennslunnar allt eftir atvikum.
Menntun fer oftast fram í menntakerfi ríkis en einnig eru til einkareknir skólar. Í mörgum löndum er lögbundið grunnnám sem hefst þegar börn eru á aldrinum 4-7 ára og lýkur þegar þau eru um 11-12 ára. Þá er börnum kennd stærðfræði, lestur, móðurmálið, erlend tungumál, íþróttir, heimilsfræði, o.fl. eftir námsskrá.
Framhaldsskólanám hefst í flestum löndum að grunnnámi loknu, við aldurinn 13 ára og stendur yfir í um 5 ár. Að því loknu er hægt að stunda nám í háskóla.
[breyta] Tenglar
- Vísindavefurinn: „Hvað lærði fólk árið 1000? Var um einhverja „menntun“ að ræða?“
- Vísindavefurinn: „Getur maður einhvern tímann orðið fullmenntaður?“