Helsinki
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Helsinki á finnsku (Helsingfors á sænsku) er höfuðborg Finnlands og jafnframt stærsta borg landsins með yfir 500 þúsund íbúa. Á öllu Helsinkisvæðinu búa samanlagt 1,2 milljónir íbúa. Helsinki er helsta miðstöð stjórnmála, menningar og vísinda í Finnlandi.
Helsinki (eða öllu heldur Helsingfors) var stofnuð 1550 af Gústaf Vasa, svíakonungi, sem keppinautur hansakaupstaðarins Tallinn í núverandi Eistlandi. Það var þó ekki fyrr en eftir að Finnland féll í hendur Rússum 1808 og varð að finnska stórfurstadæminu 1809 sem vegur Helsinki fór að dafna. Sem þátt í viðleitni sinni að minnka áhrif sænskrar menningar og tengsla við Svíþjóð ákvað Alexander I, Rússlandskeisari og stórfursti Finnlands, að flytja höfuðborgina frá Turku (Åbo) til Helsinki árið 1812.
Við lok 19.aldar hafði meirihluti íbúa Helsinki sænsku að móðurmáli en vegna mikils innflutnings finnskumælandi til borgarinnar hafa hlutföllin algjörlega snúist við og er nú sænskan á hröðu undanhaldi.
[breyta] Fólksfjölgun í Helsinki
Ár | Íbúafjöldi |
---|---|
1810 | 4 070 |
1830 | 11 100 |
1850 | 20 700 |
1880 | 43 300 |
1900 | 93 600 |
1925 | 209 800 |
2001 | 559 718 |
Helstu staðreyndir um Helsinki:
- Stofnuð: 1550
- Höfuðborg: síðan 1812
- Stærð í ferkílómetrum: 686 (þar af sjór 500)
- Strandlína: 98 km
- Fjöldi eyja: 315
- Meðalhitastig (allt árið 2004): 6,2 °C
- Hlýjasti mánuður: ágúst með meðalhita 17.3 °C
- Kaldasti mánuður: janúar með meðalhita -5,7 °C
- Heildaríbúafjöldi (2004/2005): 559.046
- Karlar: 46,6%
- Konur: 53,4%
- Finnskumælandi: 86,7%
- Sænskumælandi: 6,2%
- Íbúaþéttleiki: 2993 íbúar/ferkílómetra
- Heildarfjöldi íbúa á öllu Helsinki svæðinu: 1.240.482
[breyta] Tenglar