See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Friedrich Nietzsche - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Friedrich Nietzsche

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Vestræn heimspeki
Heimspeki 19. aldar
Friedrich Nietzsche (1844-1900)
Nafn: Friedrich Wilhelm Nietzsche
Fædd/ur: 15. október 1844
Dáin/n: 25. ágúst 1900 (55 ára)
Skóli/hefð: Meginlandsheimspeki, undanfari tilvistarspekinnar
Helstu ritverk: Mannlegt allt of mannlegt, Svo mælti Zaraþústra, Handan góðs og ills, Um sifjafræði siðferðisins
Helstu viðfangsefni: siðfræði, sifjafræði siðferðisins, frumspeki, þekkingarfræði, fagurfræði
Markverðar hugmyndir: þrælasiðferði, ofurmennið, eilíf endurkoma hins sama, viljinn til valda, tómhyggja, apollónísk-díonýsísk tvíhyggja
Áhrifavaldar: Herakleitos, Sókrates, Platon, Michel de Montaigne, Johann Wolfgang von Goethe, Arthur Schopenhauer, Jacob Burckhardt, Richard Wagner
Hafði áhrif á: Rainer Maria Rilke, Muhammad Iqbal, Sigmund Freud, Carl Jung, Theodor Adorno, Martin Heidegger, Georges Bataille, Albert Camus, Jean-Paul Sartre, George Santayana, Martin Buber, Ayn Rand, Karl Jaspers, Michel Foucault, Jacues Derrida, Gilles Deleuze, Franz Kafka, Judith Butler, Oswald Spengler

Friedrich Wilhelm Nietzsche (15. október 184425. ágúst 1900) var þýskur fornfræðingur og heimspekingur. Gagnrýni hans á menningu, trúarbrögð og heimspeki síns tíma snerist að verulegu leyti um spurningar um jákvæð og neikvæð viðhorf til lífsins í hinum ýmsu siðferðiskerfum. Ritverk Nietzsches einkennast af kraftmiklum stíl, skarpskyggni og hárfínni nálgun við viðfangsefnið. Nietzsche var ekki gefinn mikill gaumur meðan hann lifði en á síðari hluta 20. aldar hefur hann fengið viðurkenningu sem mikilvægur hugsuður í nútímaheimspeki. Á 20. öld hafði hann mikil áhrif á tilvistarspeki, fyrirbærafræði, póststrúktúralisma og póstmódernísk viðhorf. Skiptar skoðanir eru um hvernig beri að túlka heimspeki Nietzsches. Stíll hans og róttæk gagnrýni á viðtekin gildi og hugmyndina um hlutlægan sannleika valda erfiðleikum í túlkun verka hans.

Efnisyfirlit

[breyta] Æviágrip

Friedrich Nietzsche 1861.
Friedrich Nietzsche 1861.

Friedrich Wilhelm Nietzsche fæddist þann 15. október árið 1844. Hann ólst upp í smábænum Röcken, skammt frá Leipzig. Hann var nefndur eftir Friðriki Vilhjálmi 4., Prússakonungi, sem varð 49 ára gamall daginn sem Nietzsche fæddist. Foreldrar Nietzsches voru Carl Ludwig (1813–1849), lútherskur prestur og fyrrverandi kennari, og eiginkona hans Franziska Oehler (1826–1897). Þau giftust árið áður en Nietzsche fæddist. Systir hans, Elisabeth Förster-Nietzsche, fæddist árið 1846 og yngri bróðir þeirra Ludwig Joseph Nietzsche tveimur árum síðar. Faðir Nietzsches lést árið 1849 og Ludwig Jospeh ári síðar. Fjölskyldan fluttist þá búferlum til Naumburg, þar sem hún bjó hjá föðurforeldrum Nietzsches og ógiftum föðursystrum hans tveimur. Eftir að amma Nietzsches lést árið 1856 flutti Nietzsche ásamt móður sinni og systur í eigið hús.

Nietzsche gekk í drengjaskóla og síðar í einkaskóla þar sem hann eignaðist vinina Gustav Krug og Wilhelm Pinder, sem báðir voru úr virðulegum fjölskyldum. Árið 1854 hóf hann nám við Domgymnasium í Naumburg en þegar hann hafði sýnt að hann hafði mikla tónlistarhæfileika og góða málakunnáttu hlaut hann inngögnu í Schulpforta skólann, þar sem hann nam frá 1858 til 1864. Þar kynntist hann Paul Deussen og Carl von Gersdorff. Á þessum árum samdi hann bæði ljóð og tónverk. Í Schulpforta hlaut Nietzsche mikilvæga menntun í bókmenntum, einkum forngrískum og latneskum bókmenntum. Hann var einnig í fyrsta sinn í burtu frá fjölskyldu sinni og kristnu smábæjarsamfélagi.

Eftir að Nietzsche lauk grunnámi sínu árið 1864 hóf hann nám í guðfræði og klassískri textafræði við Háskólann í Bonn. Að fyrstu önninni lokinni hætti hann í guðfræði móður sinni til mikilla vonbrigða og glataði trúnni. Hann einbeitti sér að textafræðinni undir leiðsögn Friedrichs Wilhelms Ritschl. Ári síðar elti hann Ritschl til Leipzig og nam við háskólann þar. Þar kynntist hann Erwin Rohde.

Árið 1865 kynntist Nietzsche ritum Arthurs Schopenhauer og las einnig rit Friedrichs Alberts Lange, Geschichte des Materialismus (Sögu efnishyggjunnar) ári síðar. Hvort tveggja veitti honum mikla örvun og víkkuðu sjóndeildarhring hans út fyrir fornfræðina. Árið 1867 gerðist Nietzsche sjálfboðaliði í prússneska stórskotaliðinu í Naumburg í eitt ár. En hann meiddist er hann féll af hestbaki í mars árið 1868 og gat því ekki gegnt herþjónustu. Síðar sama ár kynntist hann Richard Wagner.

Nietzsche hóf starfsferil sinn sem fornfræðingur en sneri sér síðar að heimspeki. Þegar hann var 24 ára gamall fékk hann prófessorsstöðu í klassískri textafræði við Háskólann í Basel en sagði stöðunni lausri árið 1879 vegna slæmrar heilsu sinnar, sem hrjáði hann það sem eftir var ævinnar. Árið 1889 fór hann að sýna einkenni alvarlegrar geðbilunar og síðustu ár ævinnar var hann í umsjá móður sinnar og systur. Hann lést þann 25. ágúst árið 1900.

[breyta] Helstu ritverk

  • Fæðing harmleiks (Die Geburt der Tragödie), 1872
  • Mannlegt allt of mannlegt (Menschliches, Allzumenschliches: Ein Buch für freie Geister), 1878
  • Dögun (Morgenröte: Gedanken über die moralischen Vorurteile), 1881
  • Hin hýru vísindi (Die fröhliche Wissenschaft einnig nefnd La gaya scienza), 1882/1887
  • Svo mælti Saraþústra: Bók fyrir alla og engan (Also sprach Zarathustra: Ein Buch für Alle und Keinen), 1883-5
  • Handan góðs og ills (Jenseits von Gut und Böse), 1886
  • Um sifjafræði siðferðisins (Zur Genealogie der Moral: Eine Streitschrift), 1887
  • Ljósaskiptin eða hvernig maður stundar heimspeki með hamri (Götzen-Dämmerung oder Wie man mit dem Hammer philosophiert), 1888
  • Andkristur (Der Antichrist), 1888
  • Sjá manninn (Ecce Homo: Wie man wird, was man ist), 1888

[breyta] Heimildir og frekara lesefni

[breyta] Tengt efni

[breyta] Tenglar

Wikivitnun
Wikivitnun hefur upp á að bjóða safn tilvitnana á síðunni:
Commons
Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt:

Greinar á íslensku

  Þetta æviágrip sem tengist heimspeki er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -