Martin Heidegger
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar |
|
---|---|
Nafn: | Matin Heidegger |
Fædd/ur: | 26. september 1889 (Meßkirch, Þýskalandi) |
Dáin/n: | 26. maí 1976 (86 ára) (Meßkirch, Þýskalandi) |
Skóli/hefð: | Meginlandsheimspeki, fyrirbærafræði, tilvistarspeki |
Helstu ritverk: | Vera og tími |
Helstu viðfangsefni: | þekkingarfræði, frumspeki, verufræði |
Markverðar hugmyndir: | „Veran“ (Dasein) |
Áhrifavaldar: | Forverar Sókratesar, Platon, Aristóteles, Immanuel Kant, G.W.F. Hegel, Sören Kierkegaard, Friedrich Nietzsche, Edmund Husserl |
Hafði áhrif á: | Jean-Paul Sartre, Jacques Derrida, Maurice Merleau-Ponty, Michel Foucault |
Martin Heidegger (26. september 1889 – 26. maí 1976) var þýskur heimspekingur.
Heidegger hafði áhrif á marga aðra heimspekinga en meðal nemenda hans voru Hans-Georg Gadamer, Hans Jonas, Emmanuel Levinas, Hannah Arendt, Xavier Zubiri og Karl Löwith. Maurice Merleau-Ponty, Jean-Paul Sartre, Jacques Derrida, Michel Foucault, Jean-Luc Nancy og Philippe Lacoue-Labarthe kynntu sér einnig verk hans ítarlega. Auk þess að vera mikilvægur hugsuður í hefð fyrirbærafræðinnar er Heidegger álitinn mikilvægur hugsuður í tilvistarspeki, afbyggingu, túlkunarfræði og póstmódernisma. Hann reyndi að beina vestrænni heimspeki frá frumspekilegum og þekkingarfræðilegum spurningum og í áttina að verufræðilegum spurningum, það er að segja, spurningum um þýðingu verunnar, eða hvað það þýðir „að vera“. Heidegger var meðlimur í nasistaflokknum og hefur verið umdeildur m.a. af þeim sökum.
[breyta] Tengt efni
- Fyrirbærafræði
- Edmund Husserl
- Jean-Paul Sartre
- Tilvistarspeki
- Túlkunarfræði