Alkóhól
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alkóhól einkennast af skautuðum hýdroxýl hóp, og má því líta á alkóhól sem afleiður vatns (H—O—H) þar sem að lífrænir hópar hafa skipt út öðru vetnisatóminu. Alkóhól hafa því formúluna: R—OH; þar sem R táknar enska orðið residue, eða „leif“. Þegar talað er um alkóhól er oftast átt við etanól eða vínanda.
Dæmi um alkóhól:
Samkvæmt IUPAC nafnakerfinu enda nöfn alkóhóls á –ól og hliðargreinar fá forskeytið hydroxy–. Alífatísk alkóhól hafa almennu formúluna CnH2n + 1OH.
Einfaldasta ómettaða alkóhólið er etenól, einnig þekkt sem vínýlalkóhól':
Einfaldasta arómatíska alkóhólið er fenól (fenýlalkóhól).