Vafri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vafri (vefskoðari, skoðari eða vefsjá) er forrit sem notað er til að vafra um eða skoða skjöl á vefþjónum eða skráakerfi m.a. með notkun HTTP-samskiptareglnanna. Vafrar lesa kóða vefsíðu og nota hann til að miðla kóðanum á lesanlegu formi til notandans. Þeir eru mest notaða tegund aðgangsbúnaðar. Stærsta netkerfi samansett af samtengdum skrám er þekkt sem veraldarvefurinn.
[breyta] Algengir netvafrar
- Microsoft Internet Explorer
- Mozilla Firefox
- Opera
- Netscape
- Apple Safari
- OmniWeb
- Konqueror
[breyta] Heimildir
- Greinin „Web browser“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 21. desember 2005.