Íslensk króna
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Íslensk króna (ISO 4217 kóði: ISK, oft skammstöfuð kr.) er opinber gjaldmiðill á Íslandi. Hún er gefin út af Seðlabanka Íslands sem hefur haft einkaleyfi á útgáfu seðla og myntar á Íslandi frá því að hann var stofnaður árið 1961. Árið 1981 átti sér stað myntbreyting, þar sem að tekin voru tvö núll af verði krónunnar - 100 gamlar krónur urðu að 1 nýrri krónu. Króna var upprunalega samsett úr 100 aurum, en frá og með 1. október 2003 er minnsta einingin 1 króna, en auramynt er verðlaus og afturköllun er í gangi á 100, 50 og 10 krónu seðlum. Árið 2005 voru eftirtaldar upphæðir gildur gjaldmiðill á Íslandi:
- Seðlar: 5000, 2000, 1000, 500, (100, 50, 10 krónur.)
- Mynt: 100, 50, 10, 5, 1 krónur.
Á íslandi er umferð bréfseðla og myntar búin að minnka með tilkomu rafrænna greiðslumáta á borð við debetkort, kreditkort og netbanka.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
[breyta] Ríkisdalir og krónur
Íslensk króna varð fyrst til með löggjöf dagsettri 2. janúar 1871, þar sem kveðið var á um að fjárhagur Íslands og Danmerkur skyldi vera aðskilinn frá og með 1. apríl sama ár. Þá var settur á laggirnar Landssjóður Íslands, en þegar Stjórnarskrá Íslands var samþykkt árið 1874 fékk Alþingi vald til þess að semja lög um hann. Landssjóður fékk leyfi árið 1885 til þess að gefa út íslenska peningaseðla fyrir allt að hálfri milljón króna, en fékk árið 1900 leyfi til þess að gefa út seðla fyrir allt að fjórðungi milljónar til viðbótar.
Fram að því voru ríkisdalir opinber gjaldmiðill á Íslandi, sem fylgdi tilskipun 20. mars 1815. Þetta var gert eftir gengishrun sem átti sér stað í Danmörku árið 1813 þegar kúrantkerfið hrundi. Fyrsti opinberi gjaldmiðill Íslands var þó ríkisdalir úr kúrantkerfinu, sem voru prentaðir af Kurantbanken í Kaupmannahöfn, sem var fyrsti banki Danmerkur. Hann var stofnaður árið 1736 og hóf dreifingu á peningaseðlum að verðmæti 1rd og 5rd (ríkisdalir) ári síðar, sem urðu að löggildum gjaldmiðli á Íslandi eftir konunglega tilskipun árið 1778. Gerður var greinarmunur á íslenskum og dönskum seðlum með því að íslenskir seðlar höfðu áletrun á íslensku á bakhlið seðilsins, en annars var bakhliðin alveg auð. Konungleg tilskipun árið 1787 leiðrétti misskilning um það að seðlarnir með gjaldmiðillinn væri eingöngu í gildi hér á landi sé íslenski textinn á bakhliðinni.
[breyta] Seðlabanki Íslands
[breyta] Seðla- og myntraðir
[breyta] Fyrsta seðlaröð Landssjóðs
Fyrsta seðlaröð Landssjóðs Íslands var gefinn út samkvæmt lögum nr. 14 / 18. september 1885. Þá voru gefin út seðlar að andvirði 5 krónur, 10 krónur, og 50 krónur. Allir voru þeir undirritaðir af Magnúsi Stephensen, en auk hans skrifuðu Lárus Sveinbjörnsson, Eiríkur Bríem, Tryggvi Gunnarsson, Kristján Jónsson og Halldór Jónsson á mismunandi útgáfuárum. Hannes Hafstein og Klemenz Jónsson skrifuðu á 50 krónu seðilinn ásamt Tryggva Gunnarssyni og Kristjáni Jónssyni á seinni útgáfuárum. Um aldamótin var svo farið að prenta áritun landshöfðingja á 5 og 10 krónu seðla, en áfram var handskrifað á 50 krónu seðlana.
Seðill | Fór í umferð | Útlit |
---|---|---|
5 krónur | 21. september 1886 | 105x160 mm, grár með mynd og texta í svörtu. Á framhlið seðilsins er brjóstmynd af Kristjáni IX danakonungi, bakhliðin er auð. |
10 krónur | 5. júlí 1886 | 105x160 mm, blár með mynd og texta í svörtu. Á framhlið seðilsins er brjóstmynd af Kristjáni IX danakonungi, bakhliðin er auð. |
50 krónur | 30. júlí 1886 | 105x160 mm, brúnn með brjóstmynd af Kristjáni IX og texta í svörtu á framhlið. Ljósbrúnn á bakhlið með mynd af fjallkonu sitjandi á jökli (hásæti). |
Fyrsta seðlaröðin gekk úr gildi 31. janúar 1909, en lög nr 47 / 10. nóvember 1905 kváðu á um innköllun seðla landssjóðs og útgáfu nýrrar seðlaraðar.
[breyta] Önnur seðlaröð Landssjóðs
Önnur seðlaröð Landssjóðs var gefinn út samkvæmt lögum nr 14 / 18. september 1885 um stofnun landsbanka og útgáfu nýrra seðla.
Seðill | Fór í umferð | Útlit |
---|---|---|
5 krónur | 25. júlí 1907 | 70x120 mm, brúnn með fölgrænu í grunni fléttuskrauts á framhlið, ljósbrúnn með fölgrænu í grunni fléttuskrauts á bakhlið. Á framhlið seðilsins er brjóstmynd af Kristjáni IX danakonungi, en á bakhlið er skjaldarmerki Íslands (hið eldra) með Geysi vinstra megin og Heklu hægra megin í bakgrunni. |
10 krónur | 25. júlí 1907 | 70x120 mm, blár með grágulu í grunni fléttuskrauts báðum megin. Á framhlið seðilsins er brjóstmynd af Kristjáni IX danakonungi en á bakhlið er mynd af fjallkonu sitjandi á jökli (hásæti). |
50 krónur | 25. júlí 1907 | 95x149 mm, gulur feldur í gráblárri umgjörð á framhlið, gráblár með gulu í grunni fléttuskrauts á bakhlið. Á framhlið seðilsins er brjóstmynd af Friðriki VIII danakonungi en á bakhlið er mynd af fjallkonu sitjandi á jökli (hásæti). |
Önnur seðlaröðin gekk úr gildi 30. júní 1939, en lög nr 104 / 7. júlí 1938 kváðu á um innköllun seðla landssjóðs og útgáfu nýrrar seðlaraðar.
[breyta] Þriðja seðlaröð Landssjóðs
Þriðja seðlaröð var gefin út á árunum 1916 til 1919. Hún var teiknuð af Gerhard Heilman og prentuð hjá H. H. Thiele í Kaupmannahöfn. Raðnúmer seðlanna er í beinu framhaldi af 2. seðlaröð.
Seðill | Fór í umferð | Raðnúmer | Útlit |
---|---|---|---|
5 krónur | 10. maí 1919 | 60001 — | 70x120 mm, brúnn með fölgrænu í grunni fléttuskrauts. Á framhlið seðilsins er vangamynd af Christian IX danakonungi, en á bakhlið er skjaldarmerki Íslands (hið eldra) með Geysi vinstra megin og Heklu hægra megin í bakgrunni. |
10 krónur | 8. september 1916 | 70001 — | 70x120 mm, blár með grágulu í grunni fléttuskrauts báðum megin. Á framhlið seðilsins er vangamynd af Christian IX danakonungi en á bakhlið er mynd af fjallkonu sitjandi á jökli (hásæti). |
50 krónur | 17. júlí 1916 | 20001 — | 95x149 mm, gulbrúnn feldur í blágrárri umgjörð á framhlið, blágrár með gulbrúnu í grunni fléttuskrauts á bakhlið. Á framhlið seðilsins er brjóstmynd af Frederik VIII danakonungi en á bakhlið er mynd af fjallkonu sitjandi á jökli (hásæti). |
Önnur seðlaröðin gekk úr gildi 30. júní 1939, en lög nr 104 / 7. júlí 1938 kváðu á um innköllun seðla landssjóðs og útgáfu nýrrar seðlaraðar.
[breyta] Heimildir
- Opinber gjaldmiðill á Íslandi: Útgáfa og auðkenni íslenskra seðla og myntar, Myntrit 3 frá Myntsafni Seðlabanka Íslands og Þjóðminjasafns Íslands, Reykjavík 2002. ISBN 9979-9007-7-6
- Vefsíða Seðlabanka Íslands
- Sambærileg grein á Enska Wikipedia