Nikótín
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nikótín er lýtingur sem finnst í jurtum af náttskuggaætt, aðallega tóbaki og kókajurt, en í minna mæli í tómötum, kartöflum, eggaldinum og grænum pipar. Nikótín er öflugt taugaeitur og er var áður notað sem skordýraeitur. Í litlu magni virkar það örvandi á spendýr. Nikótín er þannig einn af þeim þáttum sem gera tóbaksreykingar ávanabindandi.
Nikótín er örvandi efni og mikilvægur þáttur í fíkn þeirra sem reykja. Þrátt fyrir að mestur hluti nikótíns í sígarettu brenni upp í hitanum sem myndast í sígarettunni og að magn nikótínsins sé þannig lítið, er það nægjanlegt til að valda fíkn. Magn nikótíns sem fer út í líkamann úr hverri sígarettu veltur á nokkrum þáttum, s.s. gerð tóbaksins og hvort sígarettan er með síu. Að meðaltali tekur það nikótín um sjö sekúndur að ná til heilans og nikótínið skilst aúr líkamanum á innan við tveimur tímum. Nikótínfíkn veldur þó aðeins vægum fráhvarfseinkennum hjá flestum og sjaldgæft er t.d. að fólk vakni á næturnar þegar áhrif síðustu sígarettu þverra.
