Tóbaksreykingar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipedia. Skoðaðu sýnigreinar og grein um nafnavenjur til að bæta hana. |
Tóbaksreykingar er það að kveikja í kurluðum tóbakslaufum í einhverri mynd og anda að sér reyknum sér til nautnar. Tóbakið er oftast pappírsvafnar sígarettur (sem er algengast), vindlar (laufvafnir) eða þá að tóbakið er reykt úr einhvers konar pípu. Frumbyggjar Norður-Ameríku tóku fyrstir manna að reykja tóbak, en tóbaksplantan á upprunna sinn að rekja til heimahaga þeirra í Suður- og Norður-Ameríku. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eru reykingar algengastar í Austur-Asíu en þar reykja tveir af hverjum þremur karlmanna. Í Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada hefur aftur á móti dregið úr reykingum, og er það aðallega vegna vitneskjunnar um skaðsemi þeirra, því vitað er að reykingar hafa slæm áhrif á heilsu manna.
[breyta] Áhrif á heilsu
Tóbaksreykingar eru vanabindandi og líkaminn verður mjög auðveldlega háður nikótíni. Tóbaksreykur inniheldur krabbameinsvaka og er talinn vera einn helsti orsakavaldur lungnakrabbameins, en einnig krabbamein í barkakýli og tungu. Yfir 3000 efni finnast í tóbaksreyk, og eru öll skaðleg heilsu manna. Beint samband er á milli þess tíma sem einstaklingur reykir sem og því magni sem hann reykir og hættunni á að hann fái lungnakrabbamein. Ef einstaklingur hættir að reykja aukast líkur þess að lungun jafni sig og því lengur sem hann er án tóbaks því meiri eru lífslíkurnar.
Reykingar auka einnig líkurnar á hjartasjúkdómum og nokkur efni í tóbaki leiða til þrengingar æða og valda æðastíflu og þar með hjartaáfalli. Önnur efni í tóbaksreyk leiða til hærri blóðþrýstings og sum efni í reyknum eyðileggja auk þess slagæðar og eru þess valdandi að kólestról sest á innanverða æðaveggi sem eykur líkurnar á hjartaáfalli.
Sjúkdómar tengdir tóbaksreyk:
- Lungnakrabbamein og annað krabbamein
- Lungnaþemba
- Heilablóðfall
- Æðasjúkdómar
- Fæðingasjúkdómar
- Buerger sjúkdómurinn
- Getuleysi
- Lungnasjúkdómar og krónískt bronkítis
[breyta] Óbeinar reykingar
Lengi vel gerðu menn sér ekki grein fyrir því hve hættulegar reykingar voru. Nýlega hafa menn þó beint sjónum sínum að óbeinum reykingum og þeim skaða sem þær geta valdið. Óbeinar reykingar fela í sér hættu, en vísindamenn greinir á um hve alvarleg hún er. Árið 2002 skoðuðu 29 vísindamenn frá 12 löndum margar þeirra rannsókna sem fjölluðu um hættu tóbaksreykinga með tilliti til krabbameins. Niðurstöður vísindamannanna var að óbeinar reykingar væru einnig krabbameinsvaldandi. [heimild vantar]