Mikhaíl Gorbatsjev
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mikhaíl Sergejevítsj Gorbatsjev (Rússneska:Михаи́л Серге́евич Горбачёв; framburður: /mixaˈɪɫ serˈgejevɪtʃ gərbaˈtʃof/) (fæddur 2. mars 1931 í Privolnoje). Síðasti leiðtogi Sovétríkjanna 1985-1991. Gorbatsjev hlaut Friðarverlaun Nóbels 1990, gekk í kommúnistaflokkinn 1952, kvæntist Raisu í september 1953, fór fyrir sendinefnd Sovíetríkjanna í Belgíu 1972-1974, kom til fundar við Ronald Reagan á Íslandi 1986.
Við dauða Konstantín Tsjernenko varð Gorbatsjev aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna 11. mars 1985. Hann reyndi að breyta ásýnd flokksins með „glasnost“ (opnun) og „perestroika“ (endurskipulagning). Ólíkt fyrirrennurum sínum sendi hann ekki sovéskar herdeildir til að kveða niður frelsisbaráttu íbúa Mið-Evrópu 1989. Hann meinaði ekki þýsku ríkjunum sameiningu 1990. Hann var andvígur sundrungu Sovétríkjanna 1991. Hann var settur í þriggja daga stofufangelsi af harðlínumönnum í ágúst 1991. Hann sagði af sér embætti 25. desember 1991.
Hann hitti Regan á Höfða