21. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | |||
2008 Allir dagar |
21. apríl er 111. dagur ársins (112. á hlaupári) samkvæmt gregoríanska dagatalinu. 254 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 753 f.Kr. - Segir sagan að Rómúlus og Remus hafi stofnað Róm.
- 1648 - Snjór var í mitti á sléttlendi á Suðvesturlandi, segir í Setbergsannál.
- 1800 - Sex bátar fórust úr Staðarsveit og Bjarneyjum og með þeim 37 manns í miklu norðanveðri.
- 1908 - Frederick Cook komst á norðurpólinn að eigin sögn, ári á undan Robert Peary.
- 1965 - Nafnskírteini voru gefin út til allra Íslendinga, 12 ára og eldri. Um leið voru tekin upp svonefnd nafnnúmer.
- 1971 - Fyrstu handritin komu heim frá Danmörku og voru það Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða.
- 1982 - Falklandseyjastríðið: Bretar hófu aðgerðir til að endurheimta Suður-Georgíu frá Argentínu með því að senda þangað sérsveitarmenn.
- 1989 - Um 100 þúsund kínverskir mótmælendur safnast saman á Torgi hins himneska friðar í Beijing í Kína.
- 1992 - Í Danmörku komst ræningi undan með 7,5 milljónir danskra króna eftir að hafa látið til skarar skríða gegn peningaflutningabíl Den Danske Bank við Bilka í Árósum.
[breyta] Fædd
- 1864 - Max Weber, þýskur hagfræðingur.
- 1889 - Paul Karrer, svissneskur efnafræðingur og handhafi nóbelsverðlaunanna (d. 1971).
- 1926 - Elísabet II Englandsdrottning.
- 1922 - Alistair MacLean, skoskur rithöfundur
- 1937 - Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrsti kvenprestur Íslands.
- 1947 - Iggy Pop, bandarískur söngvari
[breyta] Dáin
- 1509 - Hinrik VII, konungur Englands (f. 1457).
- 1574 - Kosímó I stórhertogi af Toskana (f. 1519).
- 1699 - Jean Racine, franskt leikskáld (f. 1639).
- 1910 - Mark Twain, bandarískur rithöfundur
- 1946 - John Maynard Keynes, enskur hagfræðingur (f. 1883).
- 1971 - François Duvalier, einræðisherra á Haítí
- 2003 - Nina Simone, djasssöngkona (f. 1933).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |