16. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | |||
2008 Allir dagar |
16. apríl er 106. dagur ársins (107. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 259 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 556 - Pelagíus 1. varð páfi.
- 1055 - Viktor 2. varð páfi.
- 1071 - Robert Guiscard lagði Barí undir sig sem var síðasta borgin á Suður-Ítalíu undir yfirráðum Austrómverska ríkisins.
- 1203 - Filippus 2. Frakkakonungur reið inn í Rúðuborg sem varð til þess að Normandí sameinaðist Frakklandi.
- 1915 - Gullfoss, fyrsta skip Eimskipafélags Íslands og jafnframt fyrsta vélknúna millilandaskipið sem smíðað var fyrir Íslendinga, kom til Reykjavíkur.
- 1919 - Mahatma (Mohandas) Gandhi skipulagði dag föstu og bæna til að mótmæla fjöldamorðum Breta á indverskum mótmælendum í Amritsar.
- 1946 - Sýrland hlaut sjálfstæði.
- 1947 - Sprenging varð í flutningaskipi í höfninni í Texas City í Bandaríkjunum. Eldurinn breiddist út um borgina og fórust yfir 600 manns.
- 1954 - AA-samtökin á Íslandi voru stofnuð. Þau starfa í deildum um allt land.
- 1957 - Bæjarráð Reykjavíkur samþykkti að friða Árbæ og næsta nágrenni hans og gera að almenningsgarði.
- 1992 - Olíuflutningaskipið Katina P sigldi í strand skammt frá Mapútó í Mósambík með þeim afleiðingum að sextíu þúsund lítrar af olíu fóru í sjóinn.
- 2003 - Tíu ríki skrifuðu undir samning um að ganga í ESB í Aþenu.
- 2007 - Virginia Tech-fjöldamorðin: Nemandinn Seung-Hui Cho við Tækniháskólann í Virginíu í Bandaríkjunum myrti 32, særði 29 og framdi síðan sjálfsmorð.
[breyta] Fædd
- 1839 - Antonio Starabba, forsætisráðherra Ítalíu (d. 1908).
- 1844 - Anatole France, franskur rithöfundur (d. 1924).
- 1863 - William Randolph Hearst, bandarískur fjölmiðlamaður (d. 1951).
- 1867 - Wilbur Wright, flugmaður (d. 1912).
- 1887 - Guðjón Samúelsson, húsameistari (d. 1950).
- 1889 - Charlie Chaplin, enskur leikari (d. 1977).
- 1922 - Kingsley Amis, enskur rithöfundur (d. 1995).
- 1924 - Enrico Nicola (Henry) Mancini, tónskáld (d. 1994).
- 1927 - Benedikt 16. páfi.
- 1940 - Margrét Þórhildur, Danadrottning.
- 1947 - Sigurrós Þorgrímsdóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1951 - Björgvin Halldórsson, íslenskur söngvari.
- 1951 - Ari Kristinsson, íslenskur kvikmyndaleikstjóri.
- 1955 - Hinrik af Lúxemborg.
- 1977 - Alek Wek, súdönsk fyrirsæta.
[breyta] Dáin
- 1117 - Magnús eyjajarl (f. 1075).
- 1331 - Lárentíus Kálfsson Hólabiskup, 63 ára.
- 1646 - Jules Hardouin Mansart, franskur arkitekt (d. 1708).
- 1828 - Francisco Goya, spænskur listamaður (f. 1746).
- 1958 - Rosalind Franklin, breskur efnafræðingur (f. 1920).
- 1989 - Brynjólfur Bjarnason, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1898).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |