Viðey
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Viðey er stór eyja í Kollafirði rétt utan við Reykjavík. Hún er 1,7 km² að flatarmáli og rís hæst 32 metra yfir sjávarmáli. Vesturhluti hennar er stór höfði sem tengist megineynni um mjótt eiði og kallast Vesturey. Í eynni eru Viðeyjarkirkja og Viðeyjarstofa.
Talið er að búið hafi verið í eyjunni frá því fljótlega eftir landnám. 1225 var þar stofnað klaustur af Ágústínusarreglu sem stóð til 1550. Síðar var rekið í eynni bú frá Bessastöðum og síðar holdsveikraspítali. Um miðja 18. öld reisti Skúli Magnússon það hús sem nú stendur í eynni og bjó þar frá 1754. 1817 keypti Magnús Stephensen eyjuna og rak þar búskap og stofnaði þar prentsmiðju.
1907-1914 var Milljónafélagið umsvifamikið í útgerð og skipaflutninga í eynni sem ætlunin var að gera að umskipunarhöfn. Á þeim árum myndaðist í eynni um 100 manna þorp á Sundabakka á austurenda Viðeyjar. Kárafélagið keypti síðar eigur Milljónafélagsins um 1920 þegar það síðarnefnda varð gjaldþrota og rak þar síðan togaraútgerð og fiskvinnslu. Á þessum árum var Viðeyjarstöð einnig umskipunarhöfn Sameinaða danska gufuskipafélagsins, þar var kolageymsla fyrir dönsku varðskipin og birgðastöð og umskipunarhöfn DDPA-félagsins. Mikil vatnssala var einnig í Viðey og salt- og kolasala. Seinna fór að halla undan fæti. 1931 hætti Kárafélagið starfsemi og þorpið fór síðan alveg í eyði 1943.
Vatnstankurinn á Sundabakka er núna félagsheimili Viðeyinga (aðsetur Viðeyingafélagsins).
1986 eignaðist Reykjavíkurborg Viðey, en hún var gjöf rikisins til borgarbúa á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Í október 2007 var reist listaverkið Friðarsúlan í eynni.
[breyta] Tenglar
- „Viðeyjarklaustur - upphaf“, á Ferlir.is
- „Víkin og Viðey - búskapur og klausturhald“, Saga Reykjavíkur, á vef Árbæjarsafns
- Viðey; sögustaður og unaðsreitur við bæjardyr Reykjavíkur; 1. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1983
- Viðreisn og höfðingjasetur; 2. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1983
- Stórbúskapur og Miljónafélag; 3. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1983
- Viðeyjarklaustrið; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1996
- Búskapur Eggerts Briem í Viðey; 1. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1963
- Vorverkin og önnur útivinna; 2. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1963