Sameinaða danska gufuskipafélagið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sameinaða danska gufuskipafélagið (eða Sameinaðafélagið) (Det Forenede Dampskibs-Selskab ) er danskt skipafélag, og var um tíma eitt það stærsta í heimi. Það varð til við sameiningu nokkurra smárra skipafélaga. Í forsæti félagsins á fyrstu árum þess var Carl Frederik Tietgen. Sameinaðafélagið var stofnað 11. desember 1866 og stundaði í lok 19. aldar og upphafi þeirra 20stu siglingar með vörur til Íslands og sá um strandsiglingar um landið.
Ekkert erlent félag var á sínum tíma eins mikið riðið við alla framþróun á Íslandi og Sameinaðafélagið. Það hélt uppi siglingum hingað frá því 1867, að undanskildum nokkrum árum sem danska stjórnin annaðist siglingar á skipinu Diana.