See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Orkuveita Reykjavíkur - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Orkuveita Reykjavíkur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.

Orkuveita Reykjavíkur er íslenskt sameignarfyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Akranesbæjar og Borgarbyggðar. Orkuveitan starfar á grundvelli laga nr. 139/2001 um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið rekur rafveitu, hitaveitu, vatnsveitu, gagnaflutningskerfi og fráveitu.

Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur eiga sæti fulltrúar þeirra þriggja sveitarfélaga sem eiga fyrirtækið; Reykjavíkurborgar, sem á 93,5%, Akraneskaupstaðar með 5,5% og Borgarbyggðar, sem á 1%. Formaður stjórnarinnar er Kjartan Magnússon. En hann er borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Varaformaður stjórnar er Jón Sigurðsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri og iðnaðarráðherra. Aðrir fulltrúar Reykjavíkurborgar eru Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður og borgarfulltrúarnir Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon. Fulltrúi Akranesbæjar er Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar og áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar Björn Bjarki Þorsteinsson.

Hjörleifur B. Kvaran er forstjóri Orkuveitunnar. Framkvæmdastjórar eru fimm:

Loftur Reimar Gissurarson er framkvæmdastjóri og gæðastjóri, Páll Erland er framkvæmdastjóri Veitna og Hólmsteinn Sigurðsson er framkvæmdastjóri Ytri tengsla og umsýslu. Anna Skúladóttir er framkvæmdastjóri Fjármála og loks er Jakob Sigurður Friðriksson framkvæmdastjóri Framleiðslu og sölu.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Orkuveita Reykjavíkur var stofnuð 1. janúar 1999, með sameiningu Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Reykjavíkur. Rafmagnsveita Reykjavíkur var stofnuð árið 1921, en Hitaveita Reykjavíkur varð að sjálfstæðu fyrirtæki árið 1946. Árið 2000 sameinaðist Vatnsveita Reykjavíkur Orkuveitunni, en vatnsveitan tók til starfa 16. júní 1909. Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi vatnsveitustjóri, var ráðinn fyrsti forstjóri Orkuveitunnar.

Þann 1. maí 2000 tók Orkuveitan við rekstri Hitaveitu Þorlákshafnar. Um áramótin 2001-2002 sameinuðust veiturnar á Akranesi og hitaveiturnar í Borgarbyggð og Borgarfjarðarsveit Orkuveitu Reykjavíkur. Þá bættist hitaveitan á Bifröst við fyrirtækið. Jafnframt var Orkuveitunni breytt úr borgarfyrirtæki í sameignarfyrirtæki og voru eigendurnir Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hafnarfjörður, Garðabær, Borgarbyggð og Borgarfjarðarsveit. Garðabær seldi sinn hlut í fyrirtækinu í árslok 2002.

Á árinu 2004 sameinuðust Austurveita, Hitaveita Hveragerðis og Ölfusveita Orkuveitunni. Í byrjun ársins 2006 sameinuðust fráveitur Reykjavíkur, Akraness, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar Orkuveitu Reykjavíkur.

[breyta] Deilur í október 2007

Í október 2007 spunnust miklar deilur um fyrirhugaða sölu á eignarhlut Orkuveitunnar í Reykjavik Energy Invest, og lyktaði þeim með því að borgarstjórnarmeirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins féll.

[breyta] Höfuðstöðvar

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur voru á Suðurlandsbraut 34 til að byrja með, en nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins voru reistar að Bæjarhálsi 1. Samkeppni var haldin um hönnun nýju höfuðstöðvanna og hlutu Hornsteinar og Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar fyrstu verðlaun í samkeppninni.

Nýjar höfuðstöðvar voru vígðar þann 23. apríl 2003. Kostnaður við byggingu höfuðstöðvanna fór talsvert fram úr áætlun og nam heildarkostnaður um 5.800 milljónum króna samkvæmt Morgunblaðinu, en 1.800 milljónir fengust fyrir sölu fyrri höfuðstöðva fyrirtækjanna sem voru sameinuð í Orkuveitunni.

[breyta] Tengill

Á öðrum tungumálum


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -