Iceland Express
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gerð: | ferðaskrifstofa |
Slagorð: | Iceland's low-fare travel agency |
Stofnað: | 2002 |
Staðsetning: | Grímsbæ, Efstalandi 26, Reykjavík |
Lykilmenn: | Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Þorsteinn Örn Guðmundsson, stjórnarformaður |
Starfsemi: | Skipulag áætlunarflugs |
Vefslóð: | http://www.icelandexpress.is, http://www.icelandexpress.com |
Iceland Express er íslenskt ferðaskrifstofan í eigu Fons eignarhaldsfélags og skipuleggur ferðir frá Keflavíkurflugvelli.
Fyrirtækið fékk ferðaskrifstofuleyfi á Íslandi frá samgönguráðherra þann 17. desember 2002 og hóf í kjölfar þess starfsemi árið 2003.
Árið 2005 festu eigendur Iceland Express kaup á dönsku flugfélögunum Sterling og Maersk Air. Eftir að hafa sameinað þau í eitt seldu þeir FL Group fyrirtækin og fengu í skiptum hlutabréf í FL Group.
Efnisyfirlit |
[breyta] Flugfloti
Félagið á hvorki né rekur flugvélaflotann sem það notar auk þess sem það hefur ekki flugmenn í vinnu. Eftir stækkun leiðarkerfisins sumarið 2006 leigir félagið þrjár vélar af gerðinni MD-90 af svissneska flugfélaginu Hello. Skráningarnúmer þeirra véla eru HB-JIC, HB-JID og HB-JIF.
Félagið hefur áður leigt þotur frá eftirfarandi flugfélögum:
- Boeing 737-300 (G-STRB og G-STRE) af breska flugfélaginu Astraeus.
- Airbus A320 (S5-AAB) af slóvenska flugfélaginu Adria.
- McDonnell Douglas MD-82 (TF-JXA og TF-JXB) af íslenska flugfélaginu JetX sem áður voru í eigu skandinavíska flugfélagsins SAS.
[breyta] Áætlun og leiðakerfi
Iceland Express flýgur frá Keflavíkurflugvelli til eftirfarandi flugvalla í Evrópu (sumaráætlun 2008):
- Kaupmannahöfn (CPH), 1-2x daglega
- London (STN), daglega
- Alicante (ALC), 3-4x í viku
- Barcelona (BCN), 2x í viku
- Basel (BSL), 2x í viku
- Berlín (SXF), 2x í viku
- Billund (BLL), 2x í viku
- Eindhoven (EIN), 2x í viku
- Frankfurt Hahn (HHN), 2-3x í viku
- Fredrichshafen (FDH), 2x í viku
- Gautaborg (GOT), 2x í viku
- París (CDG), 2x í viku
- Stokkhólmur (ARL), 2x í viku
- Varsjá (WAW), 1-2x í viku
Einnig flýgur Iceland Express í beinu flugi frá Akureyri til Kaupmannahafnar og frá Egilsstöðum til Kaupmannahafnar, 1-2x í viku.