FL Group
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gerð: | Almenningshlutafélag (ICEX: FL) |
Stofnað: | 10. mars 2005 |
Staðsetning: | Reykjavík |
Lykilmenn: | Jón Sigurðsson, forstjóri Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Þorsteinn M. Jónsson varaformaður stjórnar |
Starfsemi: | fjárfestingarfélag |
Vefslóð: | http://www.flgroup.is/ |
FL Group er fjárfestingarfyrirtæki með sérstaka áherslu á fjárfestingar í flugrekstri og ferðaþjónustu og er stærst á sínu sviði á Íslandi. Fyrir 10. mars 2005 hét fyrirtækið Flugleiðir, en það er enn oft kallað það í daglegu tali. Fyrirtækið varð til árið 1973 við sameiningu flugfélaganna Flugfélags Íslands og Loftleiða.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Aðskilnaður FL Group frá Icelandair Group og þá Flugleiðum í raun varð staðreynd 16. október 2006 þegar FL Group seldi allt hlutafé sitt í félaginu. Þann 27. desember seldi FL Group síðan allt hlutafé sitt í Sterling, danska lággjaldaflugfélaginu.
FL Group fjárfesti í desember 2006 í 5,98% hlutabréfa í bandaríska fyrirtækinu AMR Corporation, móðurfélagi flugfélagsins American Airlines. Í febrúar 2007 jók FL Group hlut sinn í 8,63%. [1] Fyrirtækið á einnig 22,4% hluta í finnska flugfélaginu Finnair. Í mars 2007 var tilkynnt að FL Group hefði keypt 10% hlut í breska fjárhættuspilafyrirtækinu Inspired Gaming Group PLC á 15,3 milljónir pund, jafnvirði um 2 milljarða króna.[2]
Í desember 2007 bárust fréttir af því að Hannesi Smárasyni yrði bolað úr stjórn félagsins af Jóni Ásgeiri og fleirum. Þá var það gert kunnugt að FL Group hyggðist auka hlutafé sitt um 64 milljarða, í 180 milljarða króna.[3][4][5]
[breyta] Stjórn FL Group
- Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður
- Þorsteinn M. Jónsson, varaformaður
- Magnús Ármann
- Jón Ásgeir Jóhannesson
- Smári Sigurðsson
- Kristinn Björnsson
- Paul Davidson
Varamenn:
- Peter Mollerup
- Magnús Kristinsson
[breyta] Tilvísanir
- ↑ FL Group komið með 8,63% í AMR og er stærsti hluthafinn. Skoðað 2. febrúar, 2007.
- ↑ FL Group kaupir hlut í bresku spilakassafélagi. Skoðað 3. mars, 2007.
- ↑ FL Group increases equity by up to ISK 64 billion, reaching ISK 180 billion in total equity. Skoðað 4. desember, 2007.
- ↑ FL Group: Skipt um forstjóra. Skoðað 4. desember, 2007.
- ↑ Hannes: Eðlilegt að víkja. Skoðað 4. desember, 2007.
[breyta] Tenglar
- Heimasíða FL Group
- Um nýkapitalisma - Stafar ógn af markaðssamfélagi nýkapitalismans? „Engin geimvísindi,” segir Hannes Smárason um tilurð FL Group., grein eftir Skúla Thoroddsen, framkvæmdastjóraStarfsgreinasambandsins