28. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2008 Allir dagar |
28. mars er 87. dagur ársins (88. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 278 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 845 - Víkingar réðust á París og rændu og rupluðu. Heimildir greina frá því að í fararbroddi hafi verið víkingur að nafni Reginherus sem sumir halda að hafi verið Ragnar loðbrók, en samkvæmt öðrum frásögnum var hann uppi heilli öld fyrr.
- 1696 - Konungur lagði þá kvöð á Íslendinga að senda skyldi þrjá menn úr hverri sýslu, þrjátíu alls, til að þjóna í flota eða landher Danaveldis.
- 1797 - Einkaleyfi fékkst fyrir fyrstu þvottavélinni í Bandaríkjunum.
- 1814 - Joseph-Ignace Guillotin sem fann upp fallöxina var jarðsettur í Frakklandi.
- 1854 - Krímstríðið: Bretland og Frakkland sögðu Rússum stríð á hendur.
- 1875 - Öskjugos hófst. Það er talið eitt mesta öskugos á Íslandi eftir að land byggðist. Þegar gosið hafði staðið í hálfan annan sólarhring urðu menn varir við gosmökkinn í Svíþjóð. Gosið varð til þess að mikill fjöldi íbúa á Austfjörðum fluttist til Vesturheims á næstu árum.
- 1881 - Tveir menn gengu á hafís alla leiðina frá Siglufirði til Akureyrar, en þessi vetur var með hörðustu sem vitað er um á Íslandi.
- 1909 - Safnahúsið við Hverfisgötu (sem nú heitir Þjóðmenningarhúsið) var vígt. Í upphafi hýsti húsið Forngripasafnið, Landsbókasafnið, Landsskjalasafnið og Náttúrugripasafnið.
- 1930 - Nöfnum tyrknesku borganna Konstantínópel og Angóra var breytt í Istanbúl og Ankara.
- 1939 - Spænska borgarastríðinu lauk.
- 1956 - Alþingi samþykkti (31 gegn 18) að Bandaríkjaher skyldi yfirgefa Ísland enda ætti ekki að vera her í landinu á friðartímum. Viðræðum um brottför hersins var frestað í nóvember vegna Uppreisnarinnar í Ungverjalandi.
- 1986 - 6.000 útvarpsstöðvar um allan heim spiluðu lagið „We are the world“ samtímis til styrktar aðgerðum gegn hungursneyð í Afríku.
[breyta] Fædd
- 1609 - Friðrik III. Danakonungur, (d. 1670)
- 1749 - Pierre-Simon Laplace, franskur stærðfræðingur (d. 1827)
- 1868 - Maxím Gorkíj, rithöfundur (d. 1936)
- 1964 - Harpa Arnardóttir, leikkona
- 1970 - Vince Vaughn, leikari
[breyta] Dáin
- 193 - Pertinax, rómverskur keisari (f. 126)
- 1881 - Modest Mússorgskíj, rússneskt tónskáld (f. 1839)
- 1941 - Virginia Woolf, rithöfundur (f. 1882)
- 1943 - Sergej Rakhmanínov, tónskáld og píanóleikari (f. 1873)
- 1969 - Dwight D. Eisenhower, 34. forseti Bandaríkjanna (f. 1890)
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |