See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Sauðnaut - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Sauðnaut

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Sauðnaut
Sauðnaut í varnarstöðu
Sauðnaut í varnarstöðu
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Spendýr (Mammalia)
Ættbálkur: Klaufdýr (Artiodactyla)
Ætt: Slíðurhyrningar (Bovidae)
Undirætt: Geitfé (Caprinae)
Ættkvísl: Ovibos
Tvínefni
Ovibos moschatus
Zimmermann (1780)

Sauðnaut (fræðiheiti: Ovibos moschatus) eru heimskautadýr af ætt slíðurhyrninga. Þau einkennast af þykkum ullarfeldi. Sauðnaut er að finna á túndrusvæðum Grænlands, Kanada og Alaska. Þau hafa einnig verið flutt til Noregs, Svíþjóðar og til Wrangel eyju í Síberíu.

Efnisyfirlit

[breyta] Lýsing

Sauðnaut tilheyra undirættinni geitfé, Caprinae, og eru þess vegna skildari geitum og sauðfé en nautgripum. Þau mynda þó eigin undirætt, Ovibos. Bæði kynin bera löng sveigð horn. Sauðnaut eru 2,5 m á lengd og um 1,4 m á hæð yfir bóginn. Fullorðnir tarfar eru sjaldan undir 200 kg á þyngd og iðulega yfir 400 kg. Feldurinn er mjög þykkur, samansettur af svörtum, gráum og brúnum hárum með yfirhárum sem dragast næstum í jörðu.

Að sumarlagi halda sauðnautin sig oftast á rökum svæðum, gjarna mýrarsvæðum í dalbotnum. Þau leita til fjalla að vetrarlagi þar sem er minni snjódýpt. Sauðnaut eru jórturdýr með fjóra maga. Þau eru jurtaætur og bíta grös, starir, lyng, birki, víði og blómplöntur. Þau krafsa í gegnum snjóinn á veturna í fæðuleit.

Sauðnaut eru mjög félagslynd og lifa í hjörðum oftast með um 10 til 20 dýrum en einstaka sinnum allt upp að 400. Í vetrarhjörðunum eru bæði kynin og dýr á öllum aldri. Á fengitímanum, seinnipart sumars, berjast tarfarnir um kýrnar og sá sterkasti rekur hina á braut. Þeir mynda oft hjarðir með 3 til 10 törfum fram á haust. Á meðan á fengitímanum stendur eru tarfarnir mjög árásargjarnir.

Sauðnaut að fara úr reifi
Sauðnaut að fara úr reifi

Kýrnar ná kynþroska tvívetra en tarfarnir fimm. Meðganga er átta til níu mánuði. Kálfurinn er á spena í um það bil eitt ár þó svo að hann geti farið aða narta í gras viku eftir burð.

Sauðnaut verjast á sérstakan hátt, ef hjörðin verður fyrir áreitni safnast fullvaxnir tarfar og kýr í hring og hafa kálfana inn í hringnum. Þetta veitir góða vörn gegn rándýrum t.d. úlfum en gerir þau að auðveldri bráð fyrir veiðimenn.

[breyta] Útbreiðsla

Útbreiðsla sauðnauta, rauði liturinn sýnir upprunalegt svæði, blái þar sem sauðnautum hefur verið sleppt á 20. öld
Útbreiðsla sauðnauta, rauði liturinn sýnir upprunalegt svæði, blái þar sem sauðnautum hefur verið sleppt á 20. öld

Sauðnaut eru eiginleg ísaldardýr og eiga upphaf að reka til norðurhluta Asíu fyrir hátt í miljón árum síðan. Þau hurfu hins vegar frá meginlandi Asíu fyrir um það bil 4000 árum síðan, síðasta lífríki þeirra þar var á Taymyr-skaga í Síberíu. Yngstu leifar eftir sauðnaut utan Norður-Ameríku eru frá Wrangel-eyjum og eru þær um 2000 ára gamlar (nefna má að þar og frá sama tíma er einnig að finna yngstu leifar eftir mammúta í heiminum). Sauðnaut fluttust yfir Berings sund til Norður-Ameríku fyrir 90000 árum síðan (það er þó umdeilt, ágiskanir eru allt frá 500000 til 30000).

Á seinni öldum hafa sauðnaut lifað villt á nyrstu svæðum Kanada, Grænlands og Alaska. Sauðnautum var útrýmt í Alaska um aldamótin 1900 en þau hafa verið flutt inn á nýtt síðan. Á síðustu öld voru sauðnautum sleppt á mörgum stöðum á norðurhvelinu og hafa hjarðirnar yfirleitt dafnað vel, má þar nefna vesturhluta Grænlands (sauðnaut lifðu upphaflega einungis á norður og norðausturhluta Grænlands), Rússlands, austur Kanada og til Noregs og Svíþjóðar. Sauðnaut voru í mikilli útrýmingarhættu á fyrrihluta 20. aldar en hafa náð sér vel á strik síðan. Á ætlað var 1999 að stofninn væri milli 65000 og 85000 dýr, um það bil tveir þriðju hlutar lifðu á Banks Island í Kanada.

Árið 1928 voru 14 kálfar fluttir til Íslands en þeir drápust allir fljótlega.

Sauðnaut í árásarham.
Sauðnaut í árásarham.

[breyta] Heimildir

[breyta] Ítarefni


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -