Norræna húsið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Norræna húsið er hús og stofnun í Vatnsmýrinni í Reykjavík, sem á að stuðla að samvinnu og efla tengsl Íslands og Norðulanda.
Byggingin var hönnuð af hinum heimsþekkta finnska hönnuði og arkitekti Alvar Aalto. Húsið var opnað 1968. Þar er bókasafn, kaffistofa og salir eru leigðir til ráðstefnu- og fundahalda. Rekstur hússins er greiddur sameiginlega af Norrænu ráðherranefndinni. Norrænir sendikennarar við Háskóla Íslands hafa skrifstofur í Norræna húsinu.
[breyta] Tengt efni
- Norðurlandahúsið í Færeyjum.