Linux
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Linux er frjáls stýrikerfiskjarni sem Linus Torvalds byrjaði að skrifa árið 1991, í dag vinna hundruðir manna að honum en Linus Torvalds hefur þó enn yfirumsjón með þróununni. Hann er nær allur skrifaður í C, með nokkra hluta sem snúa að samskiptum við einstaka örgjörva í smalamáli. Er náskylt Unix stýrikerfinu.
Upprunalega féll Linux ekki undir skilgreininguna Frjáls hugbúnaður þar sem bara mátti dreifa honum án hagnaðar, en snemma var leyfinu breytt í útgáfu 2 af Hinu almenna GNU leyfi eða GPL.
Strangt til tekið vísar orðið Linux eingöngu til kjarnans, en í daglegu tali er orðið þó notað yfir öll þau stýrikerfi og dreifingar sem byggja á honum. Richard Stallman stofnandi og aðal drifkrafturinn á bak við GNU verkefnið, sem leggur til fjölmarga aðra hluta frjálsra stýrirkerfa, hefur barist fyrir því að slík kerfi séu kölluð GNU/Linux en undirtektir við því hafa verið misgóðar.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Tenglar