See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Eysteinn Jónsson - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Eysteinn Jónsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Eysteinn Jónsson
Eysteinn Jónsson

Eysteinn Jónsson (fæddur 13. nóvember 1906, dó 11. ágúst 1993) var einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum Íslands á 20. öld. Hann hóf stjórnmálaferil sinn mjög ungur, aðeins 27 ára gamall, þegar hann tók fyrst setu á Alþingi. Hann var einn af leiðtogum Framsóknarflokksins alla tíð og eindreginn jafnaðarmaður og stuðningsmaður samvinnuhreyfingarinnar.

Efnisyfirlit

[breyta] Fjölskylda

Eysteinn var sonur Jóns Finnssonar prests og Sigríðar Hansínu Hansdóttur. Hann var kvæntur Solveigu Eyjólfsdóttur (fædd 2. nóvember 1911, dáin 29. júní 1995). Þau áttu saman börnin Sigríði (fædd 1933), Eyjólf (fæddur 1935), Jón (fæddur 1937), Þorberg (fæddur 1940), Ólöfu Steinunni (fædd 1947) og Finn (fæddur 1952).

[breyta] Menntun

Eysteinn tók Samvinnuskólapróf 1927. Framhaldsnám í Englandi 1929.

[breyta] Stjórnmál

Eysteinn var kosinn alþingismaður 27 ára og sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn nær samfellt í 40 ár (1933-1974), sem þingmaður Suður-Múlasýslu til 1959 og eftir það var hann þingmaður Austurlandskjördæmis. Hann var ráðherra árin 1934-1942 og 1947-1958, lengst af sem fjármálaráðherra. Þegar hann geriðst ráðherra í fyrsta sinn 1934 var hann einungis 27 ára gamall og því yngsti maðurinn til þess að setjast í ríkisstjórn fyrr og síðar. Þingferli lauk hann sem forseti Sameinaðs þings 1971-1974. Eysteinn var alla tíð einn af helstu forystumönnum Framsóknarflokksins, fór fyrir þingflokknum 1934 og 1943-1969 og var formaður flokksins 1962-1968.

[breyta] Ritstörf

Eysteinn samdi ýmsa bæklinga og fjölda greina um stjórnmál og þar að auki um náttúruverndar- og útivistarmál. Úrval þeirra birtist í ritsafninu Sókn og vörn (1977).

Vilhjálmur Hjálmarsson ritaði Ævisögu Eysteins Jónssonar í þrem bindum (1983—1985).

[breyta] Heimildir


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -