De Officiis
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein fjallar um ritverk Cícerós |
Ræður |
Til varnar Quinctiusi |
Til varnar Sex. Rosciusi |
Til varnar Q. Rosciusi • Gegn Caeciliusi |
Verresarræðurnar • Til varnar Tulliusi |
Til varnar Fonteiusi • Til varnar Caecinu |
Til varnar Cluentiusi |
Til varnar manilísku lögunum/ |
Um herstjórn Gnajusar Pompeiusar |
Varðandi landskipulagslögin gegn Rullusi |
Catilínsku ræðurnar • Til varnar Rabiriusi |
Til varnar Murenu • Til varnar Súllu |
Til varnar Archiasi • Til varnar Flaccusi |
Til borgaranna eftir endurkomuna |
Til öldungaráðsins eftir endurkomuna |
Um heimili sitt |
Um viðbrögð spámannanna |
Um skattlöndin handa ræðismönnunum |
Til varnar Sestiusi • Gegn Vatiniusi |
Til varnar Caeliusi • Til varnar Balbusi |
Gegn Písó • Til varnar Planciusi |
Til varnar Rabiriusi Postumusi |
Til varnar Milo |
Til varnar Marcellusi • Til varnar Ligariusi |
Til varnar Deiotarusi konungi |
Filippísku ræðurnar |
Mælskufræði |
Um efnistök • Um ræðumanninn |
Um undirgreinar mælskufræðinnar |
Um fyrirmyndarræðumanninn |
Þverstæður stóumanna |
Brútus • Ræðumaðurinn |
Um örlögin • Almæli |
[Mælskufræði handa Herenníusi] |
Heimspekiverk |
Um ríkið • Hortensíus • Lúcúllus |
Akademían • Um endimörk góðs og ills |
Samræður í Túsculum • Um eðli guðanna |
Um spádómsgáfuna • Um ellina |
Um vináttuna • Um skyldur • Um lögin |
Bréf |
Bréf til Attícusar |
Bréf til Quintusar bróður |
Bréf til Brútusar |
Bréf til vina og vandamanna |
Annað |
Um ræðismannstíð sína |
Um ævi sína og tíma |
De Officiis eða Um skyldur er rit í þremur bókum eftir rómverska stjórnmálamanninn og heimspekinginn Marcus Tullius Cicero. Ritið fjallar um siðfræði og byggir á glötuðu riti eftir stóíska heimspekinginn Panætíos.
Efnisyfirlit |
[breyta] Ritun
Um skyldur var samið í nóvember eða desember árið 44 f.Kr., á síðasta æviári Cícerós en þá var hann 62 ára gamall. Á þessum tíma fékkst Cíceró enn við stjórnmál að einhverju leyti og reyndi að koma í veg fyrir að róttæk öfl kæmust til valda í rómverska lýðveldinu. Það tókst honum ekki og Cíceró var drepinn af pólitískum andstæðingum sínum ári síðar. Ritið kom út að honum látnum.
Ritið var samið í formi bréfs til sonar hans, sem nam heimspeki í Aþenu, en átti eigi að síður að gefa út fyrir almenning.
Um skyldur hefur verið lýst sem riti sem var ætlað að gera venjulegt fólk að góðum borgurum. Í ritinu er sett fram gagnrýni á einvaldinn Júlíus Caesar, sem þá hafði nýlega verið ráðinn af dögum, og á einveldi og harðstjórn almennt.
[breyta] Efni
Cíceró var undir miklum áhrifum frá grískri heimspeki, ekki síst stóuspeki. Í Um skyldur ræðir hann m.a. hvað heiður sé og hvað sé gagnlegt og hvað ber að gera þegar það stangast á. Cíceró taldi að í raun yrði aldrei árekstur þar á milli, heldur virtist það einungis vera þannig.
Cíceró færir rök fyrir því að skortur á pólitískum réttindum spilli siðgæði manna. Hann ræðir einnig náttúrurétt sem er sagður eiga jafnt við um menn og guði.
Í ritinu hvetur Cíceró Marcus, son sinn, til að fylgja náttúrunni og viskunni auk þess að leita frama í stjórnmálum, en varar hann við ánægju og letilífi. Í ritinu styðst Cíceró mjög við dæmisögur, mun meira en í öðrum ritum sínum. Um skyldur er ekki skrifað í jafn formlegum stíl og önnur ti hans, ef til vill vegna þess að aðstæður kröfðust þess að hann ritaði það í flýti.
[breyta] Arfleifð
Arfleifð verksins er mikil. Enda þótt Um skyldur væri samið af heiðnum manni lýsti heilagur Ambrosius því yfir árið 390 að kristinni kirkju væri fyllilega heimilt að styðjast við ritið og öll önnur rit Cícerós og raunar Senecu líka. Í kjölfarið varð Um skyldur eitt meginrit allrar siðfræði á miðöldum; vitað er að Ágústínus kirkjufaðir, heilagur Hýerónýmus og Tómas frá Akvínó lásu það. Um 700 miðaldahandrit eru enn til af verkinu. (Einungis rit málfræðingsins Priscianusar eru varðveitt í fleiri handritum eða um 900 talsins.) Þegar prentlistin kom til sögunnar var Um skyldur annað ritið sem var prentað, á eftir Gutenberg-biblíunni. Fyrsta enska þýðingin kom út 1534.
Á 16. öld útbjó Erasmus frá Rotterdam vasaútgáfu af ritinu, því hann taldi ritið svo mikilvægt að helst ætti maður að hafa það með sér öllum stundum. T.W. Baldwin sagði að „á tímum Shakespeares hafi Um skyldur verið meginrit allrar siðfræði“. Í vinsælu riti sínu Governour (1531) taldi Sir Thomas Elyot upp þrjú ritverk, sem hann taldi nauðsynleg í uppeldi ungra herramanna: ritverk Platons, Siðfræði Níkomakkosar eftir Aristóteles, og Um skyldur.
Á 18. öld sagði Voltaire um Um skyldur: „Enginn mun nokkurn tímann skrifa neitt viturlegra“. Og Friðrik mikli hafði svo mikið álit á ritinu að hann bað fræðimanninn Christian Garve að gefa út nýja þýðingu á því, jafnvel þótt árið 1756 hefðu þegar verið gefnar út tvær þýskar þýðingar. Garve hóf vinnu við þýðinguna eigi að síður og og bætti við 880 blaðsína skýringarriti.
Um skyldur er enn vinsælt rit, bæði vegna stíls og upplýsingagildis.
[breyta] Útgáfur og þýðingar
[breyta] Útgáfur
Winterbottom, M. (ritstj.), M. Tulli Ciceronis De Officiis (Oxford: Oxford University Press, 1994).
[breyta] Skýringarrit
- Dyck, A., A Commentary on Cicero's De Officiis (Ann Arbor: University of Michigan Press, 1996).
[breyta] Þýðingar
- Cicero, On Duties. Walter Miller (þýð.) (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1913).
- Cicero, On Duties. Harry G. Edinger (þýð.) (Bobbs-Merrill, 1974).
- Cicero, On Duties. Miriam T. Griffin og E.M. Atkins (þýð.) (Cambridge: Cambridge University Press, 1991).
- Cicero, On Obligations. P.G. Walsh (þýð.) (Oxford: Oxford University Press, 2001).
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimild
- Greinin „De Officiis“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 31. janúar 2007.