Beatrix Hollandsdrottning
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Beatrix Wilhelmina Armgard (fædd 31. janúar, 1938) er drottning Hollands og hefur gegnt embættinu frá 30. apríl 1980, þegar móðir hennar, Júlíana drottning, eftirlét henni krúnuna. Þegar Beatrix var ung stúlka flúði hún land ásamt móður sinni og systur þegar Þjóðverjar tóku Holland í seinni heimsstyrjöldinni, fyrst til Bretlands árið 1940 og síðar til Ottawa í Kanada.
[breyta] Fjölskylda
Árið 1965 trúlofaðist Beatrix þýskum manni að nafni Claus van Amsberg (f. 6. september 1926, d. 6. október 2002). Val hennar á eiginmanni var umdeilt og olli miklum mótmælum þar sem unnusti hennar hafði verið í Hitlersæskunni. Þau eignuðust þrjá syni: Vilhjálmur Alexander (f. 1967), Johan-Friso (f. 1968) og Constantijn (f. 1969).
|