1641
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1641 (MDCXLI í rómverskum tölum) var 41. ár 17. aldar sem hófst á þriðjudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en föstudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 3. janúar - Sænski herinn reyndi án árangurs að steypa þýsku stjórninni í Regensburg.
- 10. maí - Lennart Torstenson tók við stjórn sænska hersins í Þýskalandi við lát Johans Banér.
- 19. júní - Sænski herinn sigraði her keisarans í orrustunni við Wolfenbüttel.
- 5. júlí - Bærinn Kristiansand í Noregi var stofnaður af Kristjáni 4..
- 10. ágúst - Karl 1. Englandskonungur flúði frá London til norðurhluta Englands.
- 23. október - Írska uppreisnin 1641 hófst þegar írskumælandi íbúar Ulster réðust gegn enskum landnemum og drápu þúsundir þeirra.
- 22. nóvember - Langa þingið samþykkti Kvörtunarskjalið mikla sem stefnt var gegn einveldistilburðum konungs.
[breyta] Ódagsettir atburðir
- Brynjólfur Sveinsson, biskup sótti um konungsleyfi til að stofna prentsmiðju í Skálholti en var synjað.
- Ritið Hugleiðingar um frumspeki eftir René Descartes kom út.
[breyta] Fædd
- 18. janúar - François-Michel le Tellier, franskur hermálaráðherra (d. 1691).
- 7. september - Tokugawa Ietsuna, japanskur herstjóri (d. 1680).
- 5. október - Madame de Montespan, ástkona Loðvíks 14. (d. 1707).