Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vilhjálmur Þórmundur Vilhjálmsson (f. 26. apríl 1946), er íslenskur lögfræðingur og stjórnmálamaður. Hann er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, formaður borgarráðs og fyrrum borgarstjóri í Reykjavík.
Vilhjálmur lauk stúdentsprófi frá Verslunarskólanum 1968 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1974. Vilhjálmur hefur verið mjög virkur í flokksstarfi innan Sjálfstæðisflokksins og var í stjórn Heimdallar 1965-67. Hann sat í stjórn SUS 1971-1977 og var þar af varaformaður 1973-1977. Vilhjálmur var kjörinn í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1982. Vilhjálmur var jafnframt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1986 til 2006, þar af var hann formaður frá 1990.
Vilhjálmur var borgarstjóri í 16 mánuði, 2006-2007 og varð formaður borgarráðs 24. janúar 2008, þegar að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista tók við völdum. Hann var leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 2003-2008. Hann mun taka við embætti forseta borgarstjórnar haustið 2008.
[breyta] Heimildir
Fyrirrennari: Steinunn Valdís Óskarsdóttir |
|
Eftirmaður: Dagur B. Eggertsson |