Neanderdalsmenn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipedia. Skoðaðu sýnigreinar og grein um nafnavenjur til að bæta hana. |
Efnisyfirlit |
[breyta] Uppruni
Neanderdalsmenn eru taldir hafa þróast út frá Homo heidelbergensis sem komu til Evrópu mun fyrr. Þeir eru taldnir hafa komið fram fyrir um 200.000 árum og dáið út fyrir 28.000 árum. Mest af leifum þeirra hafa fundist víða í Evrópu en einnig allt austur til Írans og norður til Síberíu.
Telja má víst að Neanderdalsmenn hafi verið komnir fram sem afmarkaður stofn fyrir 150.000 - 200.000 árum. Fundist hafa beinaleifar hundraða einstaklinga af kyni Neanderdalsmanna. Athuganir á beinaleifum hafa leitt í ljós að beinabygging Neanderdalsmanna hefur verið áþekk og hjá nútímamönnum sem hafa aðlagast köldu veðurfari. Höfuðkúpan var hins vegar frábrugðin höfuðkúpum nútímamanna. Sumir telja útlit þeirra hafi verið sérstök aðlögun að köldu og þurru loftslagi.
[breyta] Útlit
Neanderdalsmenn voru mjög líkir nútímamönnum, þeir voru þó mun lægri, riðvaxnari, stórskornari og þéttvaxnari en nútímamenn almennt. Mælingar á 10 karl- og 5 kvenbeinagrindum sýndu meðalhæð karla um 1.68 m. og kvenna um 1.59 m.
Þeir voru með framsveigð lærbein og lítið sem ekkert mitti. Þeir voru rétthentir, hægri handleggurinn var mun vöðvastæltari.
Þeir höfðu afturhallandi enni, þykka brúnahnykla og ofan við augntóttir voru áberandi beinabrýr. Ennið var lágt, haka innfallin og beinhnykill var á hnakka. Kinnbein voru aftursveigð og nasaholurnar stórar og breiðar. Þessi andlitseinkenni hafa e.t.v. verið aðlögun að köldu og þurru loftslagi.
Heilarými Neanderdalsmanna var að meðaltali stærra en hjá nútímamönnum.
Neanderdalsmenn voru e.t.v fyrstir manna til að ganga í fötum allt árið til að verjast kulda. Skinn voru notuð til fata og verkuð þannig, að þau voru strengd á grind og öll fita og sinar skafnar af. Til þess voru notuð tæki úr tinnu. Þegar búið var að súta skinnin voru föt saumuð úr þeim.
[breyta] Lífshættir
Ýmsar minjar hafa fundist sem gefa innsýn í líf Neanderdals manna. Til dæmis vopn, verkfæri og leifar fornra elstæða. Verkfærin sýna að Neanderdalsmenn voru mjög færir á sviði verkfæra- og vopnagerð. Eldstæðin sýna að þeir hafi notað eld til að hita mat og halda á sér hita.
Ljóst er að menning Neanderdalsmanna hefur verið allþróuð og margbrotin. Tinnusteinssköfur og sílar gefa til kynna að þeir hafi stundað skinnaverkun, og hafa þeir meðal annars notað skinnin í tjöld og klæði. Talið er að Neanderdalsmenn hafi lifað í hópum, 30 til 50 í hóp og að þeir haft fasta búsetu í til dæmis hellum eða þá að þeir hafi verið mikið á faraldsfæti og búið ýmist í tjöldum eða hellumi.
Neanderdalsmenn kunnu vel að nýta sér þær bjargir sem frerasléttur við rætur jökulskjaldarins mikla höfðu upp á að bjóða en þar reikuðu um hjarðir stórvaxinna dýra sem aðlagast höfðu helkulda þessa tímabils. Um þetta vitna veiðitól þeirra og áhöld, og beinaleifar veiðibráðar við aðsetursstaði þeirra.
Neanderdalsmenn hefu haft mikla samkennd og hann virðast hafa hugsað um hina veiku og öldruðu. „La Chapelle aux saint maðurinn“ er gott dæmi um það. Hann var tannlaus með brotinn kjálka sem náði að gróa. Útaf þessu gat hann ekki tuggið. En hann hefði hins vegar ekki getað lifað svona lengi eins og að hann lifði svo að hann hlýtur að hafa fengið hjálp. Maturinn hefur semsagt verið tugginn fyrir hann.
Greftrunarsiðir þeirra benda til átrúnaðar á annað líf. Oft voru munir; skartgripir eða nytjahlutir, meðal annars úr tinnu, lagðir í grafirnar. Sumar beinaleifar Neanderdalsmanna eru af einstaklingum sem hafa átt við alvarlega fötlun að stríða, og fundist hafa menjar um áverka sem hafa gróið. Þá hafa fundist beinaleifar af gamalmennum. Þetta sýnir að annast hefur verið um sjúka og vanburða einstaklinga.
[breyta] Útrýming
Neanderdalsmenn dóu út fyrir sirka 28.000 árum. Hvað olli hvarfi þeirra veit enginn en kenningarnar eru margar.
Því hefur löngum verið haldið fram að nútímamenn (Homo sapiens) hafi útrýmt Neanderdalsmönnum þegar hinir fyrrnefndu birtust í Evrópu fyrir 40.000 árum. Þetta þarf þó ekki að hafa gerst þannig að nútímamenn hafi farið með hernaði á hendur Neanderdalsmönnum, heldur hafa þeir ef til vill þrengt að þeim, til dæmis með því að leggja undir sig vetrardvalarsvæði þeirra í syðri hluta álfunnar og mynda þar þéttari og varanlegri byggð en Neanderdalsmenn.
Einnig kom Cro-maðurinn til Evrópu fyrir 40-45 þús. árum og var á sömu svæðum og neanderdalsmaðurinn. Þeir voru of fámennur til að geta útrýmt neanderdalsmanninum, en þeir hefur eflaust haft áhrif á útrýmingu þeirra.
Þegar byrjaði að kólna fyrir um 40 þús. áru fóru jöklar stækkandi og því neyddu neanderdalsmenn til að hörfa suður undan jöklunum. Þar tók við gjörólíkt landslag sem hentaði ómögulega veiðitækni þeirra og búsiðum. Sumir telja þetta hafa valdið því að þeir dóu út.
Einnig eru til margar kenningar um að sjúkdómar hafi náð að þurrka út neanderdalsmennina, og bent hefur verið á þann möguleika að homo sapiens hafi komið með sjúkdóma með sér frá afríku sem neanderdalsmenn höfðu ekki kynnst áður og voru ekki ónæmir fyrir. Erfitt er að segja til um hversu líklegt er að þetta hafi verið reyndin en möguleikinn er til staðar.
Miklar deilur eru um það hvort neanderdalsmenn hafi ekki dáið út heldur hreinlega blandast Cro Magnon manninum og séu þeir sameiginlegir forfeður nútíma evrópubúa. Af fornleifafundum að dæma hefureinhver samgangur verið a milli þeirra þar sem á sama tíma og Cro Magnon maðurin kemur til sögunnar verður mikil breyting á verkfærum neanderdalsmanna og þykir augljóst að það hafi gerst með áhrifum frá honum.
[breyta] Heimildir
Krómagon-maðurinn Tom Prideaux Fjölvi
Þróun lífsins David John og Richard Moody Heimur þekkingar
Mannkyn í mótun Heimur í hnotskurn
[breyta] Tenglar