Konungsríki
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Konungsríki eða konungdæmi er ríki þar sem þjóðhöfðinginn er konungur eða drottning. Venjulega er konungurinn valinn úr tiltekinni konungsætt þar sem titillinn gengur til þess næsta í tiltekinni erfðaröð. Konungurinn heldur stöðu sinni oftast ævilangt nema eitthvað sérstakt komi til.
Nú eru 32 einstaklingar sem fara með konungsvald í 46 löndum heims. Sextán samveldislönd heyra undir Elísabetu 2. Bretadrottningu og smáríkið Andorra heyrir undir tvo fursta, franskan og spænskan.