Kartöflubjalla
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kartöflubjalla | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
|
||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Leptinotarsa decemlineata Say, 1824 [1] |
Kartöflubjalla (eða kólóradóbjalla) (fræðiheiti: Leptinotarsa decemlineata) er bjalla sem er skaðvaldur á kartöfluökrum.
Efnisyfirlit |
[breyta] Lýsing
Bjallan er sporöskjulaga og kúpt, um 10 mm löng og 7 mm breið með rauðgult höfuð og hálsskjöld og gula skjaldvængi með svarta flekki og svartar langrendur. Lirfan er í fyrstu dökkrauð en verður síðan gul með svarta flekki.
[breyta] Lífshættir
Kartöflubjalla liggur í vetrardvala djúpt í jörðu (25–40 sm) og vaknar til lífs á vorin eftir rigningar og þegar jarðvegshiti hefur náð 14°C hita á því dýpi sem bjallan lá í dvala. Bjallan makast og kvendýrin verpa. Eggin klekjast út á 4-10 dögum. Lirfurnar ná fullum vexti á 15 dögum og grafa sig þá niður í jörðina og púpa sig. Bjöllur skríða svo úr púpum að 8-15 dögum liðnum.
[breyta] Útbreiðsla
Upprunaleg heimkynni bjöllunnar eru í Suður-Ameríku og vestanverðri Norður-Ameríku en þaðan hefur hún dreifst austur eftir álfunni og borist til Evrópu í kringum aldamótin 1900. Hún hefur fundist á öllum Norðurlöndunum og í Bretlandi en hefur ekki náð þar fótfestu.
[breyta] Kartöflubjöllur á Íslandi
Kartöflubjöllur hafa þrisvar fundist á Íslandi. Sú fyrsta fannst í Reykjavíkurhöfn í júlí 1966, sú næsta á Seltjarnarnesi í júlí 1997 og sú síðasta í Reykjavík í maí 2006. Aðstæður til útbreiðslu virðast ekki vera hagstæðar fyrir kartöflubjöllu í Norður-Evrópu og Bretlandi.
[breyta] Heimildir
- Greinin „Colorado potato beetle“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 5. janúar 2008.
- Kartöflubjalla - skart eða skaðræðisskepna (Náttúrufræðistofnun Íslands)