Hermann Jónasson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hermann Jónasson (fæddur 25. desember 1896, dó 22. janúar 1976). Hermann var leiðtogi Framsóknarflokksins stóran hluta 20. aldar og þar með einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum aldarinnar. Hann sat á Alþingi í yfir þrjátíu ár og gegndi embættum forsætis- dóms- og landbúnaðarráðherra í ýmsum ríkisstjórnum. Hann var þar að auki lögreglustjóri í Reykjavík 1929 - 1934. Auk þess má nefna að Hermann var Glímukóngur Íslands árið 1921.
Efnisyfirlit |
[breyta] Fjölskylda
Hermann var sonur Jónasar Jónssonar bónda og trésmiðs og Pálínu Björnsdóttur. Hann var kvæntur Vigdísi Oddnýju Steingrímsdóttur (fædd 4. október 1896, dáin 2. nóvember 1976). Þau áttu saman börnin Herdísi (1927), Steingrím (1928) (síðar forsætisráðherra) og Pálínu (1929).
Lúðvík Gizurarson, hæstaréttarlögmaður, hafði lengi haldið því fram að hann væri óskilgetinn sonur Hermanns og höfðaði barnsfaðernismál árið 2004. Niðurstaða DNA-rannsóknar kom árið 2007 um að 99,9% líkur væru á Lúðvík væri sonur Hermanns. [1]
[breyta] Menntun
Hermann tók lögfræðipróf 1924 og varð hæstaréttarlögmaður 1945. Kynnti sér lögreglumál á Norðurlöndum og í Þýskalandi 1928.
[breyta] Stjórnmál
Hermann var kosinn alþingismaður 1934 og sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn fram til 1967. Hann var skipaður forsætisráðherra og jafnframt dóms- og kirkjumálaráðherra og landbúnaðarráðherra 28. júlí 1934, einnig atvinnu- og samgöngumálaráðherra frá 20. mars til 2. apríl 1938 og fór með kennslumál og utanríkismál frá 20. mars 1938 til 17. apríl 1939, lausn frá embætti 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður að nýju 18. nóv. 1941 forsætisráðherra og jafnframt dómsmála- og landbúnaðarráðherra, lausn 16. maí 1942. Skipaður 14. mars 1950 landbúnaðarráðherra, lausn 11. sept. 1953. Skipaður 24. júlí 1956 forsætisráðherra og jafnframt landbúnaðar- og dómsmálaráðherra, lausn 4. des. 1958, en gegndi störfum til 23. des. 1958.
Hermann var formaður Framsóknarflokksins 1944 - 1962.
Fyrirrennari: Ásgeir Ásgeirsson |
|
Eftirmaður: Ólafur Thors |
|||
Fyrirrennari: Ólafur Thors |
|
Eftirmaður: Emil Jónsson |
[breyta] Heimildir
- Æviágrip: Hermann Jónasson. Skoðað þann 17. maí 2006.