Franz Schubert
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Franz Peter Schubert (31. janúar 1797 – 19. nóvember 1828) var austurrískt tónskáld. Hann samdi um 600 söngljóð, níu sinfóníur, kirkjulega tónlist, óperur, kammerverk og einleiksverk fyrir píanó. Á okkar tímum er hann þekktastur fyrir sönglögin, svo sem Vetrarferðina (Winterreise á þýsku) og Die schöne Müllerin, ásamt sinfóníunum. Schubert bjó lengst af ævinnar í Vínarborg en hann stríddi við mikil veikindi síðustu æviár sín og lést langt fyrir aldur fram.